Vinningshafar í Jónsmessumóti

Birt: 24/06 2010

Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen fór fram miðvikudagskvöldið 23. júní. Keppt var um farandbikar Ellingsen og var góð þátttaka á mótinu. Alls kepptu 18 keppendur í blíðskapar veðri en mótið hófst kl. 19.00 og lauk ekki fyrr en eftir kl. 22.00.


Þetta var spennandi keppni sem lauk með bráðabana um 3. sætið. Það voru þeir Svavar Stefánsson, Valgeir Ævarssson og Ásbjörn Sírnir Arnarsson sem kepptu í bráðabana og þegar upp var staðið hafði Ásbjörn vinningin um 3 sætið.


Hringirnir sem voru skotnir voru eftirfarandi, Skeet 16 dúfur, Rabbit 10, Byrgi 25 dúfur og Sporting 25 dúfur, samtals 76 dúfur.


(meira …)

Svartfuglsveiðisaga, myndir og uppskrift

Birt: 03/05 2010

Það örlaði á spennu þegar Jói tilkynnti mér að það losnaði pláss á Kópnum RE 7640 sem áætlað væri að myndi leggja úr Reykjarvíkurhöfn kl. 14:00 föstudaginn 30. apríl.


Winchester SX3 beið pen heima róleg eftir gæsa- og andatímabilið og ég ákvað að kaupa Winchester skot 36 gr. # 6. Þetta combo er eitt af því ljúfasta sem undirritaður hefur verið með á svartfuglsveiðum og dásemdin með þessa byssu minnkar ekkert. Hröð, mjúk og örugg.


(meira …)