Stórlaxinn sýnir sig

Birt: 12/07 2010

Þeir hjá SVFR eru virkir í því að miðla upplýsingum á heimasíðu sinni en daglega berast fréttir af veiði í ám í þeirra umsjón. Það er gaman að sjá að það eru að fást eitthvað af stórlaxi en í fyrradag þann 10. júlí kom á land í Klingenberg í Laxá í Kjós 103 cm spikfeitur hængur áætlaður 22-24 pund.


Sá sem landaði þessum bolta var að fá sinn annan lax en Maríulaxinn hafði hann fengið daginn áður, ekki slæm byrjun hjá þessum nýliða í laxveiðinni. Hann var í á aðra klukkustund að landa laxinum en þar sem hann komst illa í háf  var honum landað ofan við veiðistaðinn í viðurvist tveggja leiðsögumanna.


Einnig segir frá lánsömum veiðimönnum sem skelltu sér á lausar stangir í Stóru-Laxá III og settu í átta laxa og lönduðu fimm og þar af einum bolta, 93 cm hvorki meira né minna.


Myndband náðist af viðureigninni og má sjá það hér að neðan.