EllingsenBlog » stangveiði

Kastað til bata
Endurhæfing fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.

Veiðin snýst um að kasta, vona og landa. Auk þess er Kastað til bata tækifæri til að sameina líkamlega hreyfingu, kynnast konum með svipaða reynslu og síðast en ekki síst að finna þrótt, kraft og gleði í náttúrunni. Konur á öllum aldri sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa greinst með brjóstakrabbamein upplifa að Kastað til bata snýst um það að hafa gaman af lífinu, takast á við það og sigra sjálfar sig.

Það gustaði um glaðar konur og það braut  í báru undan straumi, dagana 24.-25. maí 2011 þegar 14 konur sem lokið höfðu meðferð við brjóstakrabbameini tóku þátt í  ævintýrinu á  vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila. Þær nutu þess að vaða Sogið í Grímsnesinu, vatnsmestu lindá landsins, kasta línu undir frábærri leiðsögn hæfra leiðsögumanna og  veita tilhugalífi svananna athygli, sjá selinn sem var á undan þeim og finna fyrir vináttu, gleði og slökun.

Við viljum þakka þér og þínu fyrirtæki sérstaklega fyrir að leggja hönd á plóginn, án ykkar krafta hefði þessi ferð ekki verið möguleg.

Við sendum  ykkur okkar bestu kveðjur með orðum frá þátttakendum Kastað til bata 2011

,,Ég er búin að fara og kaupa mér veiðikort til þess að geta farið að æfa mig og halda við því sem við lærðum af þessum góðu veiðimönnum sem voru svo duglegir að kenna okkur, þetta var mikil upplifun fyrir mig að fara út í Sogið og æfa köstin.  Það var mikið sem við gerðum  á þessum tveimur dögum, frábær matur‘‘ .

,,Vissi fyrirfram að þetta yrði bæði skemmtilegt og frábært í alla staði en þetta fór fram úr öllu því sem ég vænti. Dásamlegt, fullkomið’’.  …ég er ótrúlega, ótrúlega þakklát og hamingjusöm að hafa fengið þetta tækifæri… þakklát fyrri allt sem fyrir mig hefur verið gert.  Þakkir og aftur þakkir fyrir þessa dásemdardaga‘‘

Með hjartans kveðjum og miklu þakklæti,

fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands og þátttakenda

Ragnheiður Haraldsdóttir

Forstjóri Krabbameinsfélags Íslands

Ásdís Káradóttir

hjúkrunarfræðingur Ráðgjafarþjónustu KÍ

Eftirtaldir styrktaraðilar stóðu að verkefninu:

Stangveiðifélag Reykjavíkur, Kaupás – Krónan gaf allan matinn. Heilsa gaf allar döðlur, hnetur, krydd og miklu meira, guðdómlega  hollustu sem naut mikillar hylli. Norðanfiskur  gaf bleikjuna, Vífilfell  alla drykki. Lambhagi allt ferska salatið, Grímsbær gaf okkur daglega brauðið. Bragð í baráttunni, lagði til uppskriftir.  Ellingsen sá um græjurnar. Veiðihornið gaf flugur og box, Palli tannlæknir gaf okkur Brostu- derhúfur,  Bryndís Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari á Selfossi kom og  fræddi okkur. Aðrir sem studdu verkefnið eru Landsnet, Samhjálp kvenna, Krabbameinsfálagið,  Arion banki, Veritas Capital, Rapala, Aveda, L´occitane,  Kastað til bata 2010. Leiðsögumennirnir: Ólafur Kr. Ólafsson, Hjörleifur Steinarsson, Hörður B.Hafsteinsson, Gísli Rúnar Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Gunnar Sigurðsson og  Jón Þór Guðmundsson.  Kvenfélag  Grímsneshrepps, Jón B. Stefánsson formaður krabbameinsfélags Suðurlands, Rapala, landeigendur að Bíldsfelli.

Við færum ykkur öllum okkar innilegasta þakklæti.

Kastað til bata

Vinningshafar póstlistameðlima og facebook vina.
Dregin voru út tvö nöfn úr hópi póstlistameðlima og facebook vina Ellingsen og hlutu þau að launum bókina Spriklandi lax í boði veiðikokka. Þau sem duttu í lukkupottinn heita Sóley Helga Björgvinsdóttir og Rögnvaldur Örn Snorrason en þau eru bæði búsett á Akureyri. Við munum aftur bregða á leik innan skamms og tilkynna það bæði á facebook og póstlistanum. Því er um að gera að vera skráður á báðum stöðum svo það fari nú ekki fram hjá ykkur.

Þú gætir unnið fiskuppskriftabók
Við erum í gjafagírnum þessa vikuna og höfum ákveðið að gefa tvö eintök af Spriklandi lax í boði veiðikokka. Eins og Gummi í veiðideildinni benti á í bloggfærslu fyrr í vikunni þá vann bókin til verðlauna á Gourmand hátíðinni í París og því ekki nokkur spurning um að hér er um eigulega bók að ræða. Við munum draga út einn meðlim á póstlista Ellingsen og einn vin okkar á Facebook og gefa sitthvort eintakið af bókinni. Það eru því tvær leiðir til að vinna sér inn bók og það er annarsvegar að skrá sig á póstlistann og hinsvegar með því að skrá sig sem vin Ellingsen á Facebook. Við drögum úr nöfnunum í þann 19. feb og tilkynnum um vinningshafana í byrjun næstu viku.

Viðtal Laxá við Gumma í veiðideild
Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á  fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að  sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök  framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum  veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki  nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá  Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað  hann hefur að segja.

Hver er maðurinn?

Guðmundur Guðmundsson og starfar í veiðideild  Ellingsen.

Sérsvið mitt er stangveiði. Hef  stundað fluguveiði í 25 ár, kennt bæði fluguhnýtingar og köst, auk þess að vera  með fluguveiðiskóla þar sem ég hef farið með fóllk í 2 til 3 daga veiðitúra,  þetta hef ég unnið í samstarfi við aðra aðila.

Hvernig leggst sumarið framundan í  þig?

Sumarið leggst mjög vel í mig, eins og alltaf.

Einhverjar breytingar hjá Ellingsen  framundan?

Við bætum frekar í og vöruúrval mun eitthvað breytast til  hins betra, við erum komnir með góð umboð því auk Loop þá erum við t.d. með  ABU og Fenwick . Við munum  stórbæta okkur í flugum og verðum örugglega með einn flottasta flugubar landsins  í sumar, hvort heldur um er að ræða fyrir silungs eða  laxveiði.

Hver verður vinsælasta flugan í sumar að þínu  mati?

Það er erfitt að segja til um það, en ég á von á því að  flugur eins og Haugur, Dimma og gul Krafla muni sækja á í flokki  laxaflugna, í túpum verða það auðvitað Sunray og Snælda og G.S.P  og Skógá munu auka vinsældir sínar. Í urriðaveiði mun Rindillinn verða  hástökkvarinn í sumar en almennt í silungnum er aðalmálið að vera með gott  úrval. Það er þó ein fluga sem ég er alltaf með í mínu boxi hvort heldur ég er  að veiða silung eða lax og það er Black Ghost, hún veiðir allt.

Mikið hefur verið rætt um vörurnar frá Loop undan  farið, hver er staðan á því?

Staðan hjá Loop er góð. Það eru að koma nýjar  stangir, vöðlur og vöðlujakkar á þessu ári, það er verið að vinna gríðarlega  gott starf hjá Loop og gæðin sett framar öllu.

Áttu þér uppáhaldsflugu,  veiðisvæði?

Uppáhaldsflugan mín er sú fluga sem gefur best þann  daginn sem ég er að veiða. En skemmtilegast finnst mér að veiða á litlar  Hitch túpur sem og þurrflugu. Uppáhalds veiðisvæði mitt er Vatnsdalsá í  Húnavatnsýslu, hvort heldur er silungs eða laxasvæði, Langá á Mýrum er  líka frábær. En það eru margar fallegar og skemmtilegar ár sem ég hef ekki farið  í ennþá, en stefni á að bæta úr því.

Hvað eru bestu stangirnar, hjólin, línurnar að  þínu mati og af hverju?

Varðandi línur, þá eru flotlínurnar frá Loop lang  bestu línurnar, sama má segja um tauma sem og sökktauma. Intermedia  hægsökkvandi lína frá Fenwick ber af öðrum intermedialínum. Í sökklínum myndi ég  líklega nota Scientific Anglers eða Loop, en reyndar hef ég ekki notað  sökklínu í mörg ár. Bestu hjólin? Af þeim sem ég þekki þá eru það Optihjólin frá  Loop. Hvað stangir varðar þá vil ég að þær vinni alveg niður í handfang og Opti  sem og Gass stöngin frá Loop eru allt sem ég þarf, hef ekki ennþá prufað stöng  sem á séns í þær og hef ég þó prufað margar. Ég vil frekar safna mér fyrir góðri  stöng frekar en að vera með eitthvað drasl eða miðlungs gott.

Eitthvað að  lokum?

Eitt af því sem gerir veiði svona skemmtilega að  maður er endalaust að læra. Ég reyni að læra af öllum, líka þeim sem ég er að  kenna.