Endurhleðsluvörur frá Hornady

Birt: 14/10 2010

Ellingsen hefur nú fengið umboð fyrir Hornady hér á landi. Bandaríska fyrirtækið Hornady er einn fremsti framleiðandi byssukúlna, skotfæra og endurhleðsluvara fyrir skotveiðimenn og þá sem stunda skotfimi með rifflum og skammbyssum. Lock-N-Load línan af endurhleðsluvörum hefur skipað Hornady í fremstu röð á sínu sviði.


Hjá Ellingsen fæst nú fjölbreyttur tækjabúnaður frá Hornady sem þarf að nota við endurhleðslu svo sem hleðslusett með öllu því sem þarf til að byrja. Einnig stakar hleðslupressur, rafmagnsvogir og púðurskammtarar, bæði sjálfvirkir og handvirkir. Verðið er einkar hagstætt. Til dæmis má nefna að rafknúinn sjálfvirkur púðurskammtari, Lock-N-Load Auto Charge, kostar nú minna en sambærilegur skammtari frá öðrum framleiðanda kostaði hjá okkur fyrir hrun! Þá kostar byrjendasett frá Hornady mun minna en byrjendasett frá öðrum bandarískum framleiðanda sem við höfum selt.


Við bjóðum upp á mikið úrval af mótum fyrir skothylki (dies) frá Hornady, “trimmara” til að stytta skothylki sem hafa lengst úr hófi við endurtekna notkun. Þessum tækjum fylgja stýringar (pilot) fyrir algengustu hlaupvíddir og við eigum einnig stýringar fyrir margar sjaldgæfari hlaupvíddir.

Þá eigum við tengur til að setja hvellhettur í hylki, tæki til að ná kúlum úr hlöðnum skothylkjum, viðhaldssett fyrir mótin (dies) og flestan annan fylgibúnað með hleðslusettunum.


Hornady framleiðir vönduð skothylki og eigum við á lager hylki í flestum algengustu skothylkjastærðum, þar á meðal sérlega vönduð hylki til markskotfimi sumum stærðum.


Hér að neðan má sjá myndband um sögu Hornady. Þeir eru með flotta YouTube vefsíðu sem hægt er að heimsækja með því að smella hér.


IWA skotveiðisýningin í Nurnberg í Þýskalandi

Birt: 23/03 2010

Hin árlega IWA skotveiðisýningin var haldin í Nurnberg í Þýskalandi í 37. sinn. Á henni voru í fyrra um 1.100 sýnendur og meira en 32 þúsund manns heimsóttu hana frá um 100 löndum. Þetta er ein helsta og þýðingamesta sýning sem haldin er í heiminum í dag fyrir skotveiði og útivist. Undirritaður hefur heimsótt þessa sýningu undanfarin 17 ár, fyrst á námsárum mínum og eftir það á eigin vegum. Frá árinu 2005 hef ég farið á hana sem starfsmaður Ellingsen.


(meira …)

Hleðslunámskeið Ellingsen og Skotfélags Reykjavíkur

Birt: 05/03 2010

Fyrsta hleðslunámskeið  Ellingsen í samvinnu við Skotfélag Reykjavíkur var haldið helgina 27/2. Átta nemendur tóku þátt og kennari var Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður. Námskeiðið var haldið í félagsheimili S.R. í Álfsnesi. Fyrirhuguð eru fleiri námskeið og við bendum áhugasömum á að skrá sig hjá sr@sr.is eða johannv@ellingsen.is. Næsta námskeið verður haldið þegar safnast hefur saman nægur fjöldi þátttakenda en við miðum við 8-10 manns.
Námskeiðið gefur E-réttindi til hleðslu skothylkja og eru þau félagsmönnum S.R. að kostnaðarlausu. Þau eru einnig frí fyrir þá viðskiptavini Ellingsen sem hafa keypt hleðslusett eða hafa fyrirhugað að kaupa hleðslusett hjá Ellingsen.

(meira …)