Viðtal við Jonna stökkvara
Birt: 10/02 2010
Síðan Jonni framkvæmdi eitt magnaðasta áhættustökk sem undiritaður hefur augum litið hefur mér leikið forvitni á að vita meira um manninn. Ég settist því niður með Jonna og fékk að skyggnast aðeins inn í heim ofurhugans.
Segðu okkur aðeins frá sjálfum þér Jonni?
Ég heiti Jónas Stefánsson og er á 22. aldursári. Ég bjó mín fyrstu ár í Reykjavík en fluttist svo norður. Undanfarin fmm ár hef ég svo búið í Mývatnssveit. Þar sem ég hef aldrei verið sérstaklega mikið borgarbarn í mér kann ég vel við það að búa úti á landi. Ég hef verið í skóla undanfarin ár og tók stúdentspróf við Framhaldsskólann á Laugum í hittifyrra. Nú er ég hinsvegar búsettur í Reykjavík þar sem ég stunda nám í margmiðlun.
Flokkur: Vélsleðar | Efni: lynx, ski-doo | Engar athugasemdir »
Litið við á þjónustuverkstæðið
Birt: 29/01 2010
Um áramótin var þjónustuverkstæði Ellingsen flutt í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 12. Einnig voru ráðnir nýir starfsmenn enda hafa umsvif þjónustuverkstæðisins aukist til muna eftir að Ellingsen tók við nýjum umboðum. Það gekk á ýmsu þessa fyrstu daga í janúar en með áræðni tókst starfsmönnum þjónustuverkstæðisins að opna viðgerðarsal og taka á móti fyrstu tækjunum.
Eins og sést á myndunum sem fylgja þessum skrifum er nú verið að standsetja lager og móttöku varahluta. Húsakynnin eru eins og best verður á kosið eins og sést á myndunum. Smellið á eina af myndunum til að skoða þær allar stækkaðar í spilara og fléttið á milli þeirra með því að smella á ör til hægri á hverri mynd.
