EllingsenBlog » Loop

Veiðisaga frá Þingvallavatni
Ég fór ásamt Ásgeiri Hilmarssyni í veiðiferð í Þingvallavatn um daginn og langar að deila með ykkur því sem á vegi okkar varð í þeirri ferð.

Þetta var fyrsta veiðiferð sumarsins hjá okkur og því mikil spenna í loftinu. Eftir að hafa verslað veiðikortið og flugur var haldið af stað frá Reykjavík um kl. 17:00. Bleikjuveiðin var ekki hafin í vatninu og því settum við stefnuna á urriðann.

Það er þannig með urriðaveiði í Þingvallavatni að mestar líkur á fá hann er seint á kvöldin og því vorum við félagarnir nokkuð snemma í því. Það var hinsvegar gert af ráðnum hug því við höfðum hugsað okkur að næla okkur í gott stæði við vatnið og Ásgeir vissi af einu slíku í Vatnskoti í landi þjóðgarðsins. Það var nokkuð hvasst þegar við komum á svæðið og ekkert sérlega hvetjandi að veiða með flugustöng í slíkum aðstæðum. Við létum okkur hafa það því við áttum von á að hann færi að lægja um kvöldið ef eitthvað væri að marka veðurspána.

Á staðnum voru tveir veiðimenn með kaststöng og maðk sem beitu. Þeir höfðu fengið einn urriða síðustu veiðiferð sinni vikunni áður og þá með sömu veiðarfærum. Skömmu seinna bættist svo veiðimaður í hópinn sem beitti appelsínugulum spún en hann hafði fengið urriða á hann deginum áður. Ásgeir hafði fengið upplýsingar um að menn væru að fá hann á appelsínugulan nobler og varð sér úti um einn slíkan, ég beitti hinsvegar svörtum nobler sem er ein vinsælasta veiðiflugan í Þingvallavatni. Þó við hefðu skipt nokkrum sinnum um flugur og prófað okkur áfram var nobler´inn aðal flugan þetta kvöld.

Lengst af voru ekki fleiri að veiða í vatninu en þeir sem ég hef talið upp hér að ofan en það fór þó verulega að bæta í fjöldan eftir kl. 21.00. Það var greinilegt að menn þekktu vatnið og vissu hvenær mestu líkurnar væru á að fá fisk.

Klukkan 21:15 ákváðum við að gefa þessu 30 mínútur til viðbótar því í sannleika sagt vorum við ekki sérstaklega bjartsýnir á að landa fiski þennan dag. Korteri seinna gerist það svo skyndilega að línan þeysist út af hjólinu hjá Ásgeiri og ljóst að barátta var hafin við einn vænan urriða sem ætlaði sér ekki á land nema í fulla hnefana, þ.e.a.s. ef hægt er að segja það um fiska. Átökin voru mikil, stöngin svignaði, fiskurinn stökk og hamaðist og línan á hjólinu var komin að undirlínu. Ásgeir sem hefur landa nokkrum tugum laxa og stórum þar á meðal sagðist aldrei hafa lent í eins kröftugum fiski enda á urriðinn það til að djöflast mikið þegar verið er að landa honum.

Baráttan við fiskinn var ekki löng, hann virtist gefa allt í þetta í upphafi og kláraði sig frekar fljótt. Hér kemur þó einnig veiðireynsla Ásgeirs til skjalanna en viðbrögð hans voru fumlaus og hann dró fiskinn ákveðinn að landi. Við vorum ekki með vigt þetta kvöld og því ekki hægt að staðfesta þyngdina á fisknum en við getum okkur þess til að hann hafi verið 8 pund og ekki grammi léttari en það. Fiskurinn tók vel við sér þegar honum var sleppt og synti af krafti útí djúpt og kalt Þingvallavatnið.

Við pökkuðum svo saman kl. 22:00, sáttir þó undirritaður hefði alveg verið til í að hefja veiðina þetta sumarið með eins og einum urriða en það verður bara að bíða.

Ellert Rúnarsson

Nýir sölumenn í Ellingsen
Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.

Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.

Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.

Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.

Viðtal Laxá við Gumma í veiðideild
Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á  fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að  sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök  framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum  veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki  nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá  Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað  hann hefur að segja.

Hver er maðurinn?

Guðmundur Guðmundsson og starfar í veiðideild  Ellingsen.

Sérsvið mitt er stangveiði. Hef  stundað fluguveiði í 25 ár, kennt bæði fluguhnýtingar og köst, auk þess að vera  með fluguveiðiskóla þar sem ég hef farið með fóllk í 2 til 3 daga veiðitúra,  þetta hef ég unnið í samstarfi við aðra aðila.

Hvernig leggst sumarið framundan í  þig?

Sumarið leggst mjög vel í mig, eins og alltaf.

Einhverjar breytingar hjá Ellingsen  framundan?

Við bætum frekar í og vöruúrval mun eitthvað breytast til  hins betra, við erum komnir með góð umboð því auk Loop þá erum við t.d. með  ABU og Fenwick . Við munum  stórbæta okkur í flugum og verðum örugglega með einn flottasta flugubar landsins  í sumar, hvort heldur um er að ræða fyrir silungs eða  laxveiði.

Hver verður vinsælasta flugan í sumar að þínu  mati?

Það er erfitt að segja til um það, en ég á von á því að  flugur eins og Haugur, Dimma og gul Krafla muni sækja á í flokki  laxaflugna, í túpum verða það auðvitað Sunray og Snælda og G.S.P  og Skógá munu auka vinsældir sínar. Í urriðaveiði mun Rindillinn verða  hástökkvarinn í sumar en almennt í silungnum er aðalmálið að vera með gott  úrval. Það er þó ein fluga sem ég er alltaf með í mínu boxi hvort heldur ég er  að veiða silung eða lax og það er Black Ghost, hún veiðir allt.

Mikið hefur verið rætt um vörurnar frá Loop undan  farið, hver er staðan á því?

Staðan hjá Loop er góð. Það eru að koma nýjar  stangir, vöðlur og vöðlujakkar á þessu ári, það er verið að vinna gríðarlega  gott starf hjá Loop og gæðin sett framar öllu.

Áttu þér uppáhaldsflugu,  veiðisvæði?

Uppáhaldsflugan mín er sú fluga sem gefur best þann  daginn sem ég er að veiða. En skemmtilegast finnst mér að veiða á litlar  Hitch túpur sem og þurrflugu. Uppáhalds veiðisvæði mitt er Vatnsdalsá í  Húnavatnsýslu, hvort heldur er silungs eða laxasvæði, Langá á Mýrum er  líka frábær. En það eru margar fallegar og skemmtilegar ár sem ég hef ekki farið  í ennþá, en stefni á að bæta úr því.

Hvað eru bestu stangirnar, hjólin, línurnar að  þínu mati og af hverju?

Varðandi línur, þá eru flotlínurnar frá Loop lang  bestu línurnar, sama má segja um tauma sem og sökktauma. Intermedia  hægsökkvandi lína frá Fenwick ber af öðrum intermedialínum. Í sökklínum myndi ég  líklega nota Scientific Anglers eða Loop, en reyndar hef ég ekki notað  sökklínu í mörg ár. Bestu hjólin? Af þeim sem ég þekki þá eru það Optihjólin frá  Loop. Hvað stangir varðar þá vil ég að þær vinni alveg niður í handfang og Opti  sem og Gass stöngin frá Loop eru allt sem ég þarf, hef ekki ennþá prufað stöng  sem á séns í þær og hef ég þó prufað margar. Ég vil frekar safna mér fyrir góðri  stöng frekar en að vera með eitthvað drasl eða miðlungs gott.

Eitthvað að  lokum?

Eitt af því sem gerir veiði svona skemmtilega að  maður er endalaust að læra. Ég reyni að læra af öllum, líka þeim sem ég er að  kenna.