Nýir sölumenn í Ellingsen

Birt: 19/03 2010

Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.


Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.




Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.


Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.

Vinningshafar póstlistameðlima og facebook vina.

Birt: 22/02 2010

Dregin voru út tvö nöfn úr hópi póstlistameðlima og facebook vina Ellingsen og hlutu þau að launum bókina Spriklandi lax í boði veiðikokka. Þau sem duttu í lukkupottinn heita Sóley Helga Björgvinsdóttir og Rögnvaldur Örn Snorrason en þau eru bæði búsett á Akureyri. Við munum aftur bregða á leik innan skamms og tilkynna það bæði á facebook og póstlistanum. Því er um að gera að vera skráður á báðum stöðum svo það fari nú ekki fram hjá ykkur.

Þú gætir unnið fiskuppskriftabók

Birt: 17/02 2010

Við erum í gjafagírnum þessa vikuna og höfum ákveðið að gefa tvö eintök af Spriklandi lax í boði veiðikokka. Eins og Gummi í veiðideildinni benti á í bloggfærslu fyrr í vikunni þá vann bókin til verðlauna á Gourmand hátíðinni í París og því ekki nokkur spurning um að hér er um eigulega bók að ræða. Við munum draga út einn meðlim á póstlista Ellingsen og einn vin okkar á Facebook og gefa sitthvort eintakið af bókinni. Það eru því tvær leiðir til að vinna sér inn bók og það er annarsvegar að skrá sig á póstlistann og hinsvegar með því að skrá sig sem vin Ellingsen á Facebook. Við drögum úr nöfnunum í þann 19. feb og tilkynnum um vinningshafana í byrjun næstu viku.

Uppskriftabók vinnur til verðlauna

Birt: 15/02 2010

Í Gourmandkeppni matreiðslubóka í París var matreiðslubókin Spriklandi lax í boði veiðikokka valin önnur besta fiskréttauppskriftabók í heimi. Þar voru lagðar fram átta þúsund bækur frá 136 þjóðlöndum og ekki minni menn en Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros voru meðal verðlaunahafa. Í bókinni segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Þessi frábæra bók fæst að sjálfsögðu hjá okkur í Ellingsen.