Umhirða og viðhald grillsins

Birt: 06/06 2011

Jæja, þá er grillvertíðin hafin og væntanlega margir búnir að gera grillið klárt fyrir sumarið. Sá sem þetta skrifar grillar reyndar allt árið en bætir þó verulega í á sumrin, mér segir sá hugur að þannig sé það hjá flestum.


Það eru spennandi hlutir að gerast í grillbransanum ef svo má að orði komast því Olís, móðurfyrirtæki Ellingsen hefur innleitt nýja gaskúta og þrýstijafnara sem kallast Smellugas, upplýsingar um það má finna á Smellugas.is. Grillin sem seld eru í Ellingsen eru öll útbúin fyrir Smellugas, sjá grill.


(meira …)

Vörukynning: Campingaz Fargo Ferðagasgrill

Birt: 16/06 2010

Ég ætla að draga fram nýkomna vöru í Ellingsen sem útilegukindum landsins þykir væntanlega mikið til koma en það er Campingaz Fargo ferðagasgrill. Flott hönnun og einfaldleiki er það sem mér finnst um þetta grill. Grillflöturinn er 1500cm² en til samanburðar eru tveggja og þriggja brennara grillin sem við sjáum á pöllum og svölum landsmanna frá 2000 cm² – 2500 cm². Það er því lítið mál að skella upp grillveislu á tjaldstæðum landsins með þessu grilli án þess að þurfa að grilla í mörgum umferðum. Hitinn nær auðveldlega 250 gráðum sem er ákjósanlegur sem mesti hiti en ekki er ætlast til að hitinn sé hærri þegar grillað er.


Þó að kolagrillskeimurinn sé alltaf yndislegur þá eru það vissulega þægindi að geta fírað uppí gasinu og byrjað að grilla „med det samme“, verið að eins lengi og maður vill og pakkað saman á stundinni. Sitt sýnist hverjum en það sem er jákvætt í þessu öllu saman er að við höfum val. Einnig má benda á flott ferðagasgrill frá Coleman sem er stærra en hitt en ber sama eiginleika og öll önnur ferðagrill, að vera handhægt.


Grillin frá Ellingsen nota Smellugas Olís

Birt: 26/05 2010

Grillin sem seld eru í Ellingsen eru með þrýstijafnara fyrir Smellugas Olís. Okkur þykir því við hæfi að kynna örlítið þessa nýjung á gasmarkaði á Ellingsenblogginu. Það eru kannski ekki allir sem vita og ágætt að það komi fram að Olís sem selur Smellugasið er móðurfyrirtæki Ellingsen.


Innihald Smellugaskútanna þ.e.a.s. gasið er það sama og verið hefur í notkun á Íslandi í gegnum tíðina eða svokallað própan gas og engin breyting þar á. Munurinn á Smellugaskútunum og kútunum frá Gasfélaginu sem Olís seldi áður er hinsvegar sá að á Smellugaskútunum er hálsinn gerður fyrir aðra tegund af þrýstijafnara sem er smellt á kútinn í stað þess að vera skrúfaður á hann.


Þetta kerfi þekkja margir Íslendingar því það var notað hér á landi áður fyrr ásamt því skrúfaða.


(meira …)