Að raða í bakpoka

Birt: 28/04 2010

Skiptir máli hvernig það er gert?

Þetta er fyrirtaks spurning sem vert er að velta fyrir sér. Það skiptir nefnilega máli hvernig það er gert.


Ég skipti bakpokanum í þrjú megin svæði:

Botn svæði – Mið svæði – Topp svæði – Svo er lokið á bakpokanum sérpartur


Í botn svæðið fer það létta og meðfærilega.

Aukafatnaður sem ég þarf ekki að grípa mikið til fer í botninn og best er að fylla sem mest útí hliðarnar. Svefnpokinn fer líka í botninn þegar ég ferðast með hann og þykir mér allra best að nota bakpoka með aðgengi að botni. Einning er gott að pokinn er tvískiptur þannig að ég þurfi ekki að tæma allt úr bakpokanum þegar ég þarf að nota þá hluti sem eru á botninum. Ef ég þarf á öllum bakpokanum á að halda þá fer svefnpokinn undir bakpokann í vatnsheldri skjóðu.


(meira …)

Sýning á nýjum ferðatækjum

Birt: 21/04 2010

Við höfum tekið á móti fjölda fólks undanfarna daga sem hafa sýnt nýju ferðatækjunum okkar mikinn áhuga. Til að svara eftirspurn eftir minni tækjum tókum við inn nýja týpu af Coleman fellihýsi sem kallast Sedona  og einnig kynnum við í fyrsta skipti á Íslandi minni útgáfuna af Aliner a-hýsinu sem kallast Classic. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að gengi íslensku krónunar hefur áhrif á val fólks þegar kemur að ferðatækjum í dag og því má búast við því að minni tæki verði eftirsóttari en áður. Það er þá ekki þar með sagt að einhverju sé til sparað við gerð þessara tækja því þau eru í hæsta gæðaflokki. Einungis hefur verið til sparað í stærð þeirra en ekki gæðum. Til viðbótar við þessar nýju týpur erum við með til sölu gömlu góðu týpurnar sem hafa verið í sölu hjá okkur í gegnum árin og reynst vel við íslenskar aðstæður.


Við höfum einnig fengið nýja sendingu af hinum ýmsu aukahlutum fyrir ferðatækið, sjá hér. Einnig erum við með helling af nýjum vörum fyrir ferðalagið, sjá hér og gildir þá einu hvaða vistarverur fólk notar í ferðalaginu. Það er spennandi að skoða úrvalið hjá okkur af nýjum vörum og máta sig í nýjum ferðatækjum. Það er lokað hjá okkur á morgun sumardaginn fyrsta en við minnum á að við erum með opið á laugardögum frá 10:00 til 16:00.


Gleðilegt sumar :-)

Klæðnaður skiptir máli í ferðamennsku

Birt: 28/01 2010

Þegar farið er í gönguferðir, styttri sem lengri ferðir er mikilvægt að hugsa um klæðnaðinn. Klæðnaður er jú það sem skiptir í raun mestu máli þegar kemur að útivist allan ársins hring. Að klæða sig “rétt” getur oft skipt sköpum ef óhöpp fjarri byggð eiga sér stað ásamt því að vera með sjálfsagðan öryggisbúnað svo sem áttavita ( og kunna á hann ), síma, fyrstu hjálpar poka með helstu plástrum og umbúðum. Svo eru öll þau þægindi sem við viljum skapa með réttum klæðnaði nauðsynlegt til að ánægjan við ferðalögin verða sem mest. Hér að neðan ætla ég að útskýra hugtökin “innstalag, miðlag og ystalag” sem við notum oft í sambandi við fatnað. Því peysa er ekki bara peysa.

(meira …)