Can-am kynnir Side by Side fjórhjól
Birt: 18/08 2010
Can-am fjórhjóla framleiðandinn hefur bætt við nýjung í vörulínuna sína en það eru svokölluð „side-by-side“ fjórhjól. Það er á góðri íslensku einfaldlega stækkuð útgáfa af fjórhjóli með tveimur sætum hlið við hlið. Það er vissulega algengt að tveir ferðist um á fjórhjólum en það er þá þannig að annar situr fyrir aftan hinn á hnakki tækisins. Það má þá gera ráð fyrir því, svona séð úr fjarlægð a.m.k. að betur fari um farþega á þessu tæki. Stjórntækin á fjórhjólinu eru einnig með breyttu móti en þau líkjast því sem við eigum að venjast í bílum, þ.e.a.s. hringlaga stýri og bensíngjöf í gólfinu.
Helst minnir tækið á strandbíla(buggy) eins og sjá má víða á ströndum erlendis. Það er skiljanlegt af hverju þau tæki hafa ekki náð vinsældum hér á landi en þessi nýjung hentar hinsvegar vel íslenskum aðstæðum. Fjórhjólið kemur í nokkrum útgáfum en þær má sjá hér. Það fer í sölu í Evrópu í vor en ekki er hægt að gefa upp með vissu hvaða tæki af þessum sem má sjá á heimasíðu Can-am verða til sölu á Íslandi. Ellingsen bloggið mun að sjálfsögðu leyfa ykkur að fylgjast með hvað innkaupum á þessu nýja tæki varðar.
Flokkur: Fjórhjól | Efni: Can-am | Engar athugasemdir »
