Vörukynning: Campingaz Fargo Ferðagasgrill

Birt: 16/06 2010

Ég ætla að draga fram nýkomna vöru í Ellingsen sem útilegukindum landsins þykir væntanlega mikið til koma en það er Campingaz Fargo ferðagasgrill. Flott hönnun og einfaldleiki er það sem mér finnst um þetta grill. Grillflöturinn er 1500cm² en til samanburðar eru tveggja og þriggja brennara grillin sem við sjáum á pöllum og svölum landsmanna frá 2000 cm² – 2500 cm². Það er því lítið mál að skella upp grillveislu á tjaldstæðum landsins með þessu grilli án þess að þurfa að grilla í mörgum umferðum. Hitinn nær auðveldlega 250 gráðum sem er ákjósanlegur sem mesti hiti en ekki er ætlast til að hitinn sé hærri þegar grillað er.


Þó að kolagrillskeimurinn sé alltaf yndislegur þá eru það vissulega þægindi að geta fírað uppí gasinu og byrjað að grilla „med det samme“, verið að eins lengi og maður vill og pakkað saman á stundinni. Sitt sýnist hverjum en það sem er jákvætt í þessu öllu saman er að við höfum val. Einnig má benda á flott ferðagasgrill frá Coleman sem er stærra en hitt en ber sama eiginleika og öll önnur ferðagrill, að vera handhægt.