Sýning á nýjum ferðatækjum
Birt: 21/04 2010
Við höfum tekið á móti fjölda fólks undanfarna daga sem hafa sýnt nýju ferðatækjunum okkar mikinn áhuga. Til að svara eftirspurn eftir minni tækjum tókum við inn nýja týpu af Coleman fellihýsi sem kallast Sedona og einnig kynnum við í fyrsta skipti á Íslandi minni útgáfuna af Aliner a-hýsinu sem kallast Classic. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að gengi íslensku krónunar hefur áhrif á val fólks þegar kemur að ferðatækjum í dag og því má búast við því að minni tæki verði eftirsóttari en áður. Það er þá ekki þar með sagt að einhverju sé til sparað við gerð þessara tækja því þau eru í hæsta gæðaflokki. Einungis hefur verið til sparað í stærð þeirra en ekki gæðum. Til viðbótar við þessar nýju týpur erum við með til sölu gömlu góðu týpurnar sem hafa verið í sölu hjá okkur í gegnum árin og reynst vel við íslenskar aðstæður.
Við höfum einnig fengið nýja sendingu af hinum ýmsu aukahlutum fyrir ferðatækið, sjá hér. Einnig erum við með helling af nýjum vörum fyrir ferðalagið, sjá hér og gildir þá einu hvaða vistarverur fólk notar í ferðalaginu. Það er spennandi að skoða úrvalið hjá okkur af nýjum vörum og máta sig í nýjum ferðatækjum. Það er lokað hjá okkur á morgun sumardaginn fyrsta en við minnum á að við erum með opið á laugardögum frá 10:00 til 16:00.
Gleðilegt sumar
Flokkur: Ferðatæki, Ferðavörur | Efni: Aliner, Ferðamennska, Fleetwood | Engar athugasemdir »
Litið við á þjónustuverkstæðið
Birt: 29/01 2010
Um áramótin var þjónustuverkstæði Ellingsen flutt í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 12. Einnig voru ráðnir nýir starfsmenn enda hafa umsvif þjónustuverkstæðisins aukist til muna eftir að Ellingsen tók við nýjum umboðum. Það gekk á ýmsu þessa fyrstu daga í janúar en með áræðni tókst starfsmönnum þjónustuverkstæðisins að opna viðgerðarsal og taka á móti fyrstu tækjunum.
Eins og sést á myndunum sem fylgja þessum skrifum er nú verið að standsetja lager og móttöku varahluta. Húsakynnin eru eins og best verður á kosið eins og sést á myndunum. Smellið á eina af myndunum til að skoða þær allar stækkaðar í spilara og fléttið á milli þeirra með því að smella á ör til hægri á hverri mynd.
Notkun og uppsetning fellihýsa
Birt: 26/01 2010

Þegar kemur að því standsetja ferðatækið er gott að hafa örlitlar leiðbeiningar um það hvernig skuli bera sig að.
Í þessum bæklingi eru notkunarleiðbeiningar fyrir bæði Fleetwood og Aliner fellihýsi, hvernig eigi að umgangast þau, setja upp á vorin og ganga frá á haustin.
Gott er að prenta út bæklinginn og hafa hann við höndina þegar hans er þörf. Skoða bækling.
Einnig er vert að minnast á að gott er að setja ferðatækið tímanlega á þjónustuverkstæði ef viðgerðar á því er þörf fyrir sumarið. Hægt er að panta tíma hjá þjónustuverkstæði Ellingsen á netfangið halldor@ellingsen.is eða í síma 580 8510.
