Ellingsen hefur fengið í sölu frábært viðgerðarefni fyrir nánast öll efni í leik og í starfi

Birt: 24/02 2012 - Höfundur Ellingsen


Tear-aid B

Tear-aid B


Þetta er frábær viðbót í flóru Ellingsen, og á heima í bakpoka útivistar-, veiði-, vélsleða- , fjórhjóla-,  og ferðafjölskyldna. Staðbundnar viðgerðir verður leikur einn þegar Tear-Aid er með í för. Tvær týpur eru af þessum plástri, A – og B – týpur. A-týpan er fyrir nánast öll efni fyrir utan PVC og Vinyl og B- týpan er fyrir PVC og Vinyl. Nú skiptum við út duct teipum og notum varanlegar lausnir þegar við lendum í vandræðum á fjöllum eða í fjöru.

Frábært viðgerðarefni á nánast allt. Lagar göt á rifur, þannig að ekki rifnar meir. Tjald, bíltoppur, bakpokinn, sætisáklæði, leður, vöðlur, fatnaður, loftdýnur, markísur, ofl. Hvort sem er fyrir PVC/VINYL eða annað.


Tear-Aid er ómissandi viðgerðaplástur fyrir nánast allt í leik og / eða starfi.
Tear-Aid er gríðalega sterkur og endingargóður gegnsær plástur sem notaður er til viðgerðar á rifum og götum á nánast öllum efnum og mjög teygjanlegt. Tear-Aid er ekki tímabundin lausn heldur varanleg viðgerð sem á heima í öllum viðlegubúnaði, í bílnum, bátnum, heima og að heiman.  Tear-Aid er notað til viðgerðar á meðal annars tjöldum, bakpokum, útivistarfatnaði, regnfatnaði, öllum „tex“ fatnaði,  svefnpokum, dúnúlpum, jökkum, töskum, upplásanlegum dýnum, bátum, sundkútum ofl. Einnig  hentar plásturinn á vörur  úr áli, ryðfríu stáli, trefjaplasti og fleira. Tear-Aid er í tveim tegundum A og B. Báðar gerðir hafa sömu einskaklega eiginleika nema þeir geta verið notaðir á mismundandi efni.


Helstu eiginleikar: Auðvelt í meðhöndlun, mjög sterkt, vatnsþétt, loftþétt, mjög teygjanlegt, eyðist ekki, verulega fjölhæft, þornar ekki, varanlegt




Reiðhjól fyrir alla frá Merida.

Birt: 20/02 2012 - Höfundur Ellingsen

Nú fljótlega mun Ellingsen bjóða upp sérlega vönduð reiðhjól frá framleiðandanum Merida.
Merida býður upp á mjög stórt úrval af hjólategundum fyrir stóra sem smáa í mörgum verðflokkum. Reiðhjólin sem gerð eru eftir norskum hönnunar og gæðakröfum!
Þar á meðal eru heimsklassahjól sem eru notuð í keppnum út um allan heim, en Merida styrkir nokkra af sterkustu hjólreiðamönnum heims í dag.
Við erum að tala um: Barnahjól, fjallahjól, götuhjól, keppnishjól, freestyle, BMX og nýja kynslóð af rafmagnshjólum. Ekki nóg með að við munum bjóða upp á helstu vara- og aukahluti , heldur mun þjónustuverkstæði Ellingsen einnig bjóða upp á viðgerðar og viðhaldsþjónustu.

Nánari upplýsingar um merkið má sjá hér http://www.merida.no/


Merida O.Nine 2000-D


Boðskort – Frumsýnum Ski-Doo og Lynx árgerð 2012

Birt: 07/12 2011 - Höfundur Ellingsen

Föstudaginn 9. desember verður opið hús í Ellingsen. Þar verða nýjustu vélsleðarnir frá Ski-Doo og Lynx kynntir ásamt nýjum aukahlutum frá Scott og BRP. Húsið er opið frá kl. 18 – 20 og verða léttar veitingar í boði.

Boðskort í Ellingsen

Boðskort í Ellingsen



Nýju vélsleðarnir komnir til landsins!

Birt: 28/11 2011 - Höfundur Ellingsen

Ski-Doo og Lynx vélsleðarnir árgerð 2012 er komnir til landsins og er byrjað að standsetja þá núna.

Komnir inn á gólf.

Komnir inn á gólf.







Nýtt vörumerki í Ellingsen

Birt: 02/11 2011 - Höfundur Ellingsen

Nú höfum við tekið inn nýjar vörur frá Mountain Hardware sem er fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að bjóða upp á vandaðar vörur fyrir kröfuhart fjallafólk. Mountain Hardware útivistarvörurnar eru meðal annars útivistarfatnaður fyrir karla, konur og börn. Einnig tjöld, svefnpokar, bakpokar sem eru sérhannaðar vörur til að takast á við hvað erfiðar aðstæður á fjöllum.
Mountain Hardware heldur uppi háðum gæðastaðli með því að sameina nýjungar og með sérstakri áherslu á smáatriðin. Það að þeir bjóði æviábyrgð á sínum vörum segir segir það sem þarf um þeirra metnað um að bjóða upp á hágæða vörur. Nú þegar eru komnar nokkrar vörur til sýnis og sölu í verslun okkar að Fiskislóð 1 og munum við svo vöruúrvalið aukast jafnt og þétt með haustinu.

Ellingsen leggur höfuðáherslu á að hafa ávallt vandaðar og hagstæðar vörur á boðstólnum og fellur Mouintain Hardware vel inn í það magnaða vöruúrval sem er nú þegar til boða.