Nýtt vörumerki í Ellingsen
Birt: 02/11 2011 - Höfundur Ellingsen
Nú höfum við tekið inn nýjar vörur frá Mountain Hardware sem er fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að bjóða upp á vandaðar vörur fyrir kröfuhart fjallafólk. Mountain Hardware útivistarvörurnar eru meðal annars útivistarfatnaður fyrir karla, konur og börn. Einnig tjöld, svefnpokar, bakpokar sem eru sérhannaðar vörur til að takast á við hvað erfiðar aðstæður á fjöllum.
Mountain Hardware heldur uppi háðum gæðastaðli með því að sameina nýjungar og með sérstakri áherslu á smáatriðin. Það að þeir bjóði æviábyrgð á sínum vörum segir segir það sem þarf um þeirra metnað um að bjóða upp á hágæða vörur. Nú þegar eru komnar nokkrar vörur til sýnis og sölu í verslun okkar að Fiskislóð 1 og munum við svo vöruúrvalið aukast jafnt og þétt með haustinu.
Ellingsen leggur höfuðáherslu á að hafa ávallt vandaðar og hagstæðar vörur á boðstólnum og fellur Mouintain Hardware vel inn í það magnaða vöruúrval sem er nú þegar til boða.
Flokkur: Fatnaður, Ferðavörur, Skór | | Engar athugasemdir »
Veiðirifflamót Ellingsen 24. júlí 2011
Birt: 03/08 2011 - Höfundur Ellingsen
Veiðirifflamót Ellingsen var haldið laugardaginn 24. júlí. Áður hafði því verið frestað vegna veðurs, en þrátt fyrir það vorum við mjög óheppin með veðrið þennan dag og það má segja að keppnin á 300 metrum hafi fokið út í veður og vind. Það gekk á með suð-austanátt og rigningu og ákveðið var að láta stigatölu á 100 metrum gilda til sigurs og nota skífur sem þola vel rigninu og vind.
Þátttaka var góð, 15 skyttur með mismunandi búnað tóku þátt. Skotið var af tvífæti á 300 metrum, en eins og áður sagði þá eru engir til frásagnar um stigatölu þar, og á 100 metrum var 10 skotum skotið fríhendis.
Úrslit voru sem hér segir:
1. Guðjón Freyr (Laxi) 84 stig. Gullverðlaun + 50.000 kr. gjafabréf í Ellingsen
2. Filipus Sigurðsson 83 stig. Silfurverðlaun + RCBS Rock Chucker hleðslupressa
3. Kjartan Friðriksson 79 stig. Bronsverðlaun + RCBS púðurskammtari
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Veiðirifflamót Ellingsen verður haldið sunnudaginn 24 Júlí
Birt: 15/07 2011 - Höfundur Ellingsen
Veiðirifflamót Ellingsen sem átti að vera þann 3 júlí og var frestað, verður haldið sunnudaginn 24 Júlí kl. 11.00 árdegis.
Keppt verður á 100 metrum standandi staða 10 skot og 300 metrum á borði með tvífót 10 skot.
Sjá nánari reglur á www.sr.is.
Og hér neðar á síðunni
Vegleg verðlaun
1. Gjafabréf Ellingsen 50.000 kr
2. RCBS Rock Chucker hleðslupressa 39.990 kr
3. RCBS Púðurskamtari 23.490 kr
Nánari upplýsingar johannv@ellingsen.is eða hringja 840-1773
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Veiðirifflamót Ellingsen 3. Júlí 2011 FRESTAÐ vegna veðurs!
Birt: 01/07 2011 - Höfundur Ellingsen
Þar sem að veðurspáin er ekki hagstæð fyrir daginn þá hefur mótinu því miður verið frestað.
Ný tímasetning verður auglýst síðar.
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen Úrslit
Birt: 28/06 2011 - Höfundur Ellingsen
Við hjá Ellingsen viljum þakka ykkur öllum fyrir góða þátttöku og skemmtileg mót
Og óskum ykkur góðs gengis á næstu mótum , sjáumst að ári.
Fyrir hönd Ellingsen
Jói byssusmiður
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »


















