Ellingsen afhendir Björgunarsveitinni Dagrenningu tvo nýja Ski-Doo vélsleða
Birt: 26/04 2011
Ellingsen var að afhenda Björgunarsveitinni Dagrenningu tvo nýja Ski-Doo Renegade X 800 E-TEC vélsleða. Óskum við þeim til hamingju með þá og vonum að þeir komi að góðum notum.
Flokkur: Vélsleðar | | Engar athugasemdir »
Upplifðu 2012 árgerðina frá Ski-Doo
Birt: 09/03 2011
Enginn annar sleðinn kemur einu sinni nálægt Ski-Doo undir húddinu, á fjallið eða á slóð.
Ski-Doo hefur verið leiðandi frumkvöðull í snjósleða tækni og upplifun í yfir 50 ár. Og eru ekki hættir núna!
Þegar það kemur að snjósleðum, þá er það Ski-Doo. Svo eru það allir hinir.
Flokkur: Ferðavörur, Vélsleðar | | Engar athugasemdir »
Vinningshafar á Facebook
Birt: 03/01 2011
Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:
Ása Þorsteinsdóttir
Hulda Pálsdóttir
Helgi Sveinbjörnsson
Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.
Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Kerrur, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Vélsleðar | | Engar athugasemdir »
Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen
Birt: 10/12 2010
Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.
Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.
Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.
Til hamingju Ása.
Jólakveðja,
Starfsfólk Ellingsen
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Kerrur, Notað, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Vélsleðar, Ýmislegt | | 1 Athugasemd »
Nýir sölumenn í Ellingsen
Birt: 19/03 2010
Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.
Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.
Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.
Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.
Flokkur: Fjórhjól, Stangveiði, Vélsleðar | Efni: E-TEC, lax, Loop, ski-doo, veiðiflugur | Engar athugasemdir »


