Uppskriftabók vinnur til verðlauna

Birt: 15/02 2010

Í Gourmandkeppni matreiðslubóka í París var matreiðslubókin Spriklandi lax í boði veiðikokka valin önnur besta fiskréttauppskriftabók í heimi. Þar voru lagðar fram átta þúsund bækur frá 136 þjóðlöndum og ekki minni menn en Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros voru meðal verðlaunahafa. Í bókinni segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Þessi frábæra bók fæst að sjálfsögðu hjá okkur í Ellingsen.

Viðtal Laxá við Gumma í veiðideild

Birt: 25/01 2010

Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað hann hefur að segja.




Hver er maðurinn?

Guðmundur Guðmundsson og starfar í veiðideild Ellingsen.

Sérsvið mitt er stangveiði. Hef stundað fluguveiði í 25 ár, kennt bæði fluguhnýtingar og köst, auk þess að vera með fluguveiðiskóla þar sem ég hef farið með fóllk í 2 til 3 daga veiðitúra, þetta hef ég unnið í samstarfi við aðra aðila.


(meira …)