Ellingsen styður, Kastað til bata
Birt: 07/06 2010
Krabbameinsfélagið hefur hrint af stað verkefninu „Kastað til bata“ og er það Ellingsen mikill heiður að fá að taka þátt í því. Hér að neðan má lesa frétt Krabbameinsfélgsins um verkefnið og er hún svohljóðandi:
Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands býður konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í þriggja daga ferð í júlí norður í Laxárdal. Markmið þessa boðs Krabbameinsfélagsins er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi Laxár, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða urriða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og sjúkraþjálfari, sem einnig er vanur fluguveiðimaður verður til halds og trausts. Í kastæfingum verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. Á staðnum verða félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Flokkur: Stangveiði | Efni: flugukast, Laxá | Engar athugasemdir »
Veiðisaga frá Þingvallavatni
Birt: 17/05 2010
Ég fór ásamt Ásgeiri Hilmarssyni í veiðiferð í Þingvallavatn um daginn og langar að deila með ykkur því sem á vegi okkar varð í þeirri ferð.
Þetta var fyrsta veiðiferð sumarsins hjá okkur og því mikil spenna í loftinu. Eftir að hafa verslað veiðikortið og flugur var haldið af stað frá Reykjavík um kl. 17:00. Bleikjuveiðin var ekki hafin í vatninu og því settum við stefnuna á urriðann.
Flokkur: Stangveiði | Efni: Loop, Nobler, veiðiflugur, veiðikortið, Þingvallavatn | 1 Athugasemd »
Nýir sölumenn í Ellingsen
Birt: 19/03 2010
Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.
Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.
Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.
Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.
Flokkur: Fjórhjól, Stangveiði, Vélsleðar | Efni: E-TEC, lax, Loop, ski-doo, veiðiflugur | Engar athugasemdir »
Þú gætir unnið fiskuppskriftabók
Birt: 17/02 2010
Við erum í gjafagírnum þessa vikuna og höfum ákveðið að gefa tvö eintök af Spriklandi lax í boði veiðikokka. Eins og Gummi í veiðideildinni benti á í bloggfærslu fyrr í vikunni þá vann bókin til verðlauna á Gourmand hátíðinni í París og því ekki nokkur spurning um að hér er um eigulega bók að ræða. Við munum draga út einn meðlim á póstlista Ellingsen og einn vin okkar á Facebook og gefa sitthvort eintakið af bókinni. Það eru því tvær leiðir til að vinna sér inn bók og það er annarsvegar að skrá sig á póstlistann og hinsvegar með því að skrá sig sem vin Ellingsen á Facebook. Við drögum úr nöfnunum í þann 19. feb og tilkynnum um vinningshafana í byrjun næstu viku.
Flokkur: Stangveiði | Efni: lax, stangveiði | Engar athugasemdir »
Uppskriftabók vinnur til verðlauna
Birt: 15/02 2010
Í Gourmandkeppni matreiðslubóka í París var matreiðslubókin Spriklandi lax í boði veiðikokka valin önnur besta fiskréttauppskriftabók í heimi. Þar voru lagðar fram átta þúsund bækur frá 136 þjóðlöndum og ekki minni menn en Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros voru meðal verðlaunahafa. Í bókinni segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Þessi frábæra bók fæst að sjálfsögðu hjá okkur í Ellingsen.
Flokkur: Stangveiði | Efni: lax, matreiðslubók, uppskriftir | 2 Athugasemdir »
