EllingsenBlog » Stangveiði

Kastað til bata
Endurhæfing fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.

Veiðin snýst um að kasta, vona og landa. Auk þess er Kastað til bata tækifæri til að sameina líkamlega hreyfingu, kynnast konum með svipaða reynslu og síðast en ekki síst að finna þrótt, kraft og gleði í náttúrunni. Konur á öllum aldri sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa greinst með brjóstakrabbamein upplifa að Kastað til bata snýst um það að hafa gaman af lífinu, takast á við það og sigra sjálfar sig.

Það gustaði um glaðar konur og það braut  í báru undan straumi, dagana 24.-25. maí 2011 þegar 14 konur sem lokið höfðu meðferð við brjóstakrabbameini tóku þátt í  ævintýrinu á  vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila. Þær nutu þess að vaða Sogið í Grímsnesinu, vatnsmestu lindá landsins, kasta línu undir frábærri leiðsögn hæfra leiðsögumanna og  veita tilhugalífi svananna athygli, sjá selinn sem var á undan þeim og finna fyrir vináttu, gleði og slökun.

Við viljum þakka þér og þínu fyrirtæki sérstaklega fyrir að leggja hönd á plóginn, án ykkar krafta hefði þessi ferð ekki verið möguleg.

Við sendum  ykkur okkar bestu kveðjur með orðum frá þátttakendum Kastað til bata 2011

,,Ég er búin að fara og kaupa mér veiðikort til þess að geta farið að æfa mig og halda við því sem við lærðum af þessum góðu veiðimönnum sem voru svo duglegir að kenna okkur, þetta var mikil upplifun fyrir mig að fara út í Sogið og æfa köstin.  Það var mikið sem við gerðum  á þessum tveimur dögum, frábær matur‘‘ .

,,Vissi fyrirfram að þetta yrði bæði skemmtilegt og frábært í alla staði en þetta fór fram úr öllu því sem ég vænti. Dásamlegt, fullkomið’’.  …ég er ótrúlega, ótrúlega þakklát og hamingjusöm að hafa fengið þetta tækifæri… þakklát fyrri allt sem fyrir mig hefur verið gert.  Þakkir og aftur þakkir fyrir þessa dásemdardaga‘‘

Með hjartans kveðjum og miklu þakklæti,

fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands og þátttakenda

Ragnheiður Haraldsdóttir

Forstjóri Krabbameinsfélags Íslands

Ásdís Káradóttir

hjúkrunarfræðingur Ráðgjafarþjónustu KÍ

Eftirtaldir styrktaraðilar stóðu að verkefninu:

Stangveiðifélag Reykjavíkur, Kaupás – Krónan gaf allan matinn. Heilsa gaf allar döðlur, hnetur, krydd og miklu meira, guðdómlega  hollustu sem naut mikillar hylli. Norðanfiskur  gaf bleikjuna, Vífilfell  alla drykki. Lambhagi allt ferska salatið, Grímsbær gaf okkur daglega brauðið. Bragð í baráttunni, lagði til uppskriftir.  Ellingsen sá um græjurnar. Veiðihornið gaf flugur og box, Palli tannlæknir gaf okkur Brostu- derhúfur,  Bryndís Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari á Selfossi kom og  fræddi okkur. Aðrir sem studdu verkefnið eru Landsnet, Samhjálp kvenna, Krabbameinsfálagið,  Arion banki, Veritas Capital, Rapala, Aveda, L´occitane,  Kastað til bata 2010. Leiðsögumennirnir: Ólafur Kr. Ólafsson, Hjörleifur Steinarsson, Hörður B.Hafsteinsson, Gísli Rúnar Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Gunnar Sigurðsson og  Jón Þór Guðmundsson.  Kvenfélag  Grímsneshrepps, Jón B. Stefánsson formaður krabbameinsfélags Suðurlands, Rapala, landeigendur að Bíldsfelli.

Við færum ykkur öllum okkar innilegasta þakklæti.

Kastað til bata

Vinningshafar á Facebook
Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:

Ása Þorsteinsdóttir

Hulda Pálsdóttir

Helgi Sveinbjörnsson

Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.

Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.

Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen
Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í  hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og  skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.

Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.

Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í  Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í  jólagjöf.

Til hamingju Ása.

Jólakveðja,

Starfsfólk Ellingsen

Sumarmarkaður Ellingsen 22. júlí til 6. ágúst
Hinn árlegi Sumarmarkaður Ellingsen er hafinn!

Búðin er sprengsfull af vörum á tilboði frá 15% til 70% af verði og valdar vörur frá Columbia eru á 80% afslætti.

Eins og áður þá fara „góðu bitarnir“ fyrst og því gildir „fyrstir koma fyrstir fá“.

Ef þú ert að fara í útilegu og vantar Coleman gæðastól og skvísu með kæli  þá er rétt að kíkja við á Fiskislóðina, nú eða vantar þig tjald? Fellihýsin hafa rokið út í sumar og allur viðlegubúnaður en við eigum enn fjöldann allan af vörum fyrir þig á Sumarmarkaðnum.

Ertu að fara í veiði? Strákarnir í veiðideildinni hafa dregið þá nokkra úr ám landsins í sumar og vilja ólmir segja þér frá því, góð veiðisaga er aldrei betri en þegar fjöldinn heyrir! Loop er á tilboði og allar aðrar stangveiðivörur og þeir í sumarskapi.

Fyrir gönguferðina þá eru starfsmenn Ellingsen tilbúnir að aðstoða þig að finna rétta fatnaðinn, hvort sem þú ætlar uppá Esju eða á Hornstrandir. Frá sokkum og upp í húfu.. (þarf hana á sumrin? ) að sjálfsögðu er Devold undirfatnaður á tilboði.

Degi er að farið að halla og nú þegar rómantískasti tími ársins er að hefjast með sinni fallegu birtu þá er ekki slæmt að vera með góð ljós af Sumarmarkaðnum.

Er fyrirhuguð ferð á Fjórhjóli um landið í ágúst en vantar hjólið? Komdu við og strákarnir í ferðatækjum taka vel á móti þér með kaffi og kræsnar sögur, já eða frábær tilboð.

Nú fer senn að líða að skotveiðitímabilinu og því er lag að skoða og yfirfara skotvopnin. Athuga hvað það er sem vantar, er hanskinn síðan í fyrra týndur? Eða varstu ekki nógu vel falinn í fyrra? Jói byssusmiður veit eitt og annað í því samhengi. Á Sumarmarkaði mælum við með liggibyrgi fyrir næstu vertíð.

Sumarmarkaðurinn stendur fram að verslunarmannahelgi og nú er rétti tíminn að ná í vörur sem vantar fyrir síðustu ferðir sumarsins þótt að við ferðumst um landið allt árið.

Njótum ferðalagsins og göngum um landið með virðingu og tryggjum öryggi alla leið.

Stórlaxinn sýnir sig
Þeir hjá SVFR eru virkir í því að miðla upplýsingum á heimasíðu sinni en daglega berast fréttir af veiði í ám í þeirra umsjón. Það er gaman að sjá að það eru að fást eitthvað af stórlaxi en í fyrradag þann 10. júlí kom á land í Klingenberg í Laxá í Kjós 103 cm spikfeitur hængur áætlaður 22-24 pund.

Sá sem landaði þessum bolta var að fá sinn annan lax en Maríulaxinn hafði hann fengið daginn áður, ekki slæm byrjun hjá þessum nýliða í laxveiðinni. Hann var í á aðra klukkustund að landa laxinum en þar sem hann komst illa í háf  var honum landað ofan við veiðistaðinn í viðurvist tveggja leiðsögumanna.

Einnig segir frá lánsömum veiðimönnum sem skelltu sér á lausar stangir í Stóru-Laxá III og settu í átta laxa og lönduðu fimm og þar af einum bolta, 93 cm hvorki meira né minna.

Myndband náðist af viðureigninni og má sjá það hér að neðan.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="640" height="385" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/npV9NdRRCDI&hl=en_US&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="640" height="385" src="http://www.youtube.com/v/npV9NdRRCDI&hl=en_US&fs=1" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Ellingsen styður, Kastað til bata
Krabbameinsfélagið hefur hrint af stað verkefninu „Kastað til bata“ og er það Ellingsen mikill heiður að fá að taka þátt í því. Hér að neðan má lesa frétt Krabbameinsfélgsins um verkefnið og er hún svohljóðandi:

Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands býður konum  sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í þriggja  daga ferð í júlí norður í Laxárdal. Markmið þessa boðs  Krabbameinsfélagsins er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á  líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi Laxár,  njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða urriða, ef  heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu  og sjúkraþjálfari, sem einnig er vanur fluguveiðimaður verður til halds  og trausts. Í kastæfingum verður tekið mið af líkamlegri getu  þátttakenda. Á staðnum verða félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til  stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsfólk  Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Gert er ráð fyrir þátttöku fjórtán kvenna. Gist er í tveggja manna  herbergjum og á boðstólum verður ljúffengur og hollur matur í anda krása  úr matreiðslubókinni Bragð í baráttunni.

Ferðin tekur þrjá daga, flogið verður til Akureyrar að morgni 12. júlí,  staldrað við á Akureyri þar sem sóttur er veiðibúnaður sem fenginn er að  láni frá Ellingsen og síðan ekið að Rauðhólum í Laxárdal þar sem  hópurinn gistir.

Á bökkum Laxár gefst konum tækifæri til að gleyma sér í kyrrð og ró í  stórbrotinni náttúrufegurð Laxárdals og sækja styrk til kvenna með  svipaða reynslu, sem eru sáttar við breytingar sem sjúkdómurinn olli og  eru tilbúnar að miðla af sinni reynslu. Síðast en ekki síst er  tilgangurinn sá að njóta gleðinnar sem því fylgir að kasta flugu, renna  fyrir silung, vaða tært vatn Laxár og endurnærast á sál og líkama. Á  þriðja degi verður síðan ekið aftur til Akureyrar og flogið heim að  kvöldi til.

Konur sem hafa hug á að taka þátt í Laxárferðinni eru beðnar að senda  umsókn til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 25. júní. Nánari  upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is. Í  Ráðgjafarþjónustunni eru veittar nánari upplýsingar í síma 540-1900.  Þátttakendur á höfuðborgarsvæðinu hittast á undirbúningsfundi í  Ráðgjafarþjónustunni fyrir ferðina.

Samstarfaðilar verkefnisins eru:

Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Ellingsen, Veiðihornið, Flugfélag Íslands,  Icelandair, Veiðihúsið Rauðhólum, Vífilfell, Heilsa, Nettó, Lýsing,  Landsnet, Alþýðusamband Íslands og Bjarni Höskuldsson og félagar  leiðbeina um veiðisvæðið.

Skjólstæðingar Krabbameinsfélagsins sem vilja taka þátt í þessu verkefni geta heimsótt vefsíðu Krabbameinsfélagsins með því að smella hér og nálgast frekari upplýsingar um skráningu.

Veiðisaga frá Þingvallavatni
Ég fór ásamt Ásgeiri Hilmarssyni í veiðiferð í Þingvallavatn um daginn og langar að deila með ykkur því sem á vegi okkar varð í þeirri ferð.

Þetta var fyrsta veiðiferð sumarsins hjá okkur og því mikil spenna í loftinu. Eftir að hafa verslað veiðikortið og flugur var haldið af stað frá Reykjavík um kl. 17:00. Bleikjuveiðin var ekki hafin í vatninu og því settum við stefnuna á urriðann.

Það er þannig með urriðaveiði í Þingvallavatni að mestar líkur á fá hann er seint á kvöldin og því vorum við félagarnir nokkuð snemma í því. Það var hinsvegar gert af ráðnum hug því við höfðum hugsað okkur að næla okkur í gott stæði við vatnið og Ásgeir vissi af einu slíku í Vatnskoti í landi þjóðgarðsins. Það var nokkuð hvasst þegar við komum á svæðið og ekkert sérlega hvetjandi að veiða með flugustöng í slíkum aðstæðum. Við létum okkur hafa það því við áttum von á að hann færi að lægja um kvöldið ef eitthvað væri að marka veðurspána.

Á staðnum voru tveir veiðimenn með kaststöng og maðk sem beitu. Þeir höfðu fengið einn urriða síðustu veiðiferð sinni vikunni áður og þá með sömu veiðarfærum. Skömmu seinna bættist svo veiðimaður í hópinn sem beitti appelsínugulum spún en hann hafði fengið urriða á hann deginum áður. Ásgeir hafði fengið upplýsingar um að menn væru að fá hann á appelsínugulan nobler og varð sér úti um einn slíkan, ég beitti hinsvegar svörtum nobler sem er ein vinsælasta veiðiflugan í Þingvallavatni. Þó við hefðu skipt nokkrum sinnum um flugur og prófað okkur áfram var nobler´inn aðal flugan þetta kvöld.

Lengst af voru ekki fleiri að veiða í vatninu en þeir sem ég hef talið upp hér að ofan en það fór þó verulega að bæta í fjöldan eftir kl. 21.00. Það var greinilegt að menn þekktu vatnið og vissu hvenær mestu líkurnar væru á að fá fisk.

Klukkan 21:15 ákváðum við að gefa þessu 30 mínútur til viðbótar því í sannleika sagt vorum við ekki sérstaklega bjartsýnir á að landa fiski þennan dag. Korteri seinna gerist það svo skyndilega að línan þeysist út af hjólinu hjá Ásgeiri og ljóst að barátta var hafin við einn vænan urriða sem ætlaði sér ekki á land nema í fulla hnefana, þ.e.a.s. ef hægt er að segja það um fiska. Átökin voru mikil, stöngin svignaði, fiskurinn stökk og hamaðist og línan á hjólinu var komin að undirlínu. Ásgeir sem hefur landa nokkrum tugum laxa og stórum þar á meðal sagðist aldrei hafa lent í eins kröftugum fiski enda á urriðinn það til að djöflast mikið þegar verið er að landa honum.

Baráttan við fiskinn var ekki löng, hann virtist gefa allt í þetta í upphafi og kláraði sig frekar fljótt. Hér kemur þó einnig veiðireynsla Ásgeirs til skjalanna en viðbrögð hans voru fumlaus og hann dró fiskinn ákveðinn að landi. Við vorum ekki með vigt þetta kvöld og því ekki hægt að staðfesta þyngdina á fisknum en við getum okkur þess til að hann hafi verið 8 pund og ekki grammi léttari en það. Fiskurinn tók vel við sér þegar honum var sleppt og synti af krafti útí djúpt og kalt Þingvallavatnið.

Við pökkuðum svo saman kl. 22:00, sáttir þó undirritaður hefði alveg verið til í að hefja veiðina þetta sumarið með eins og einum urriða en það verður bara að bíða.

Ellert Rúnarsson

Nýir sölumenn í Ellingsen
Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.

Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.

Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.

Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.

Þú gætir unnið fiskuppskriftabók
Við erum í gjafagírnum þessa vikuna og höfum ákveðið að gefa tvö eintök af Spriklandi lax í boði veiðikokka. Eins og Gummi í veiðideildinni benti á í bloggfærslu fyrr í vikunni þá vann bókin til verðlauna á Gourmand hátíðinni í París og því ekki nokkur spurning um að hér er um eigulega bók að ræða. Við munum draga út einn meðlim á póstlista Ellingsen og einn vin okkar á Facebook og gefa sitthvort eintakið af bókinni. Það eru því tvær leiðir til að vinna sér inn bók og það er annarsvegar að skrá sig á póstlistann og hinsvegar með því að skrá sig sem vin Ellingsen á Facebook. Við drögum úr nöfnunum í þann 19. feb og tilkynnum um vinningshafana í byrjun næstu viku.

Uppskriftabók vinnur til verðlauna
Í Gourmandkeppni matreiðslubóka í París var matreiðslubókin Spriklandi lax í boði veiðikokka valin önnur besta fiskréttauppskriftabók í heimi. Þar voru lagðar fram átta þúsund bækur frá 136 þjóðlöndum og ekki minni menn en Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros voru meðal verðlaunahafa. Í bókinni segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Þessi frábæra bók fæst að sjálfsögðu hjá okkur í Ellingsen.