Jónsmessumót Skotreynar & Ellingsen

Birt: 21/06 2011

Jónsmessumót Skotreynar í samvinnu við Ellingsen verður haldið laugardaginn 25 júní á skotæfingarsvæði Skotreynar.
Mæting kl 11:30 mót hefst kl 12:00. Skotnar verða 60 dúfur plús 25 í final. Þátttökugjald 2.000kr.
25 sporting velli 2
25 sporting velli 3
10 rabbit


Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending


Keppt verður að vanda í 2 flokkum.
Eingöngu er leyfilegt að keppa með WINCHESTER skotum og hvetjum við alla til að fara í Ellingsen og ná sér í skot fyrir helgina.


Keppt er um Farand bikar „Ellingsen bikarinn“
Og verðlaun eru eftirfarandi
1 sæti Farandbikar + Gullpeningur + 500 Winchesterskot
2 sæti Silfurpeningur + Winchester byssupoki
3 sæti Bronz peningur + Winchester húfa



Veiðiferð til Póllands 16.- 20. maí

Birt: 28/04 2011

Fyrirhuguð er veiðiferð til Póllands í maí, einnig getur sama tilboð hentað í júní og júlí.
Sjá nánar í auglýsingu hér fyrir neðan. Upplýsingar veitir Jói byssusmiður 840-1773 johannv@ellingsen.is og Pétur Óskarsson petur@katla-dmi.is

Veiðiferð til Póllands 16.- 20. maí

Veiðiferð til Póllands 16.- 20. maí

Námskeið í endurhleðslu á riffilskothylkjum

Birt: 17/03 2011

Námskeiðið verður haldið laugardaginn 26. Mars í félagsheimili SR í Álfsnesi Kl. 10 árdegis og stendur til Kl 14.00.

- Frítt er fyrir félaga SR og þá viðskiptavini Ellingsen sem hafa keypt hleðslusett þar.

- Fyrir hádegi er farið yfir bóklegt og eftir hádegi verklegt, kennslu gögn eru á staðnum.

- Námskeiðið veitir viðkomandi E-réttindi eða leyfi til endurhleðslu.


Nánari upplýsingar og skráning er hjá Jóa byssusmið johannv@ellingsen.is


Kennari: Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður


Kl 14.00-16.00 Kynning á Hornady endurhleðsluvörum



Vinningshafar á Facebook

Birt: 03/01 2011

Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:


Ása Þorsteinsdóttir
Hulda Pálsdóttir
Helgi Sveinbjörnsson


Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.


Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.



Winchester Sx3 er hraðasta hálfsjálfvirka byssa sem völ er á

Birt: 17/12 2010

Winchester Sx3 er hraðasta hálfsjálfvirka byssa sem völ er á. Þessi byssa er með heimsmet í hraðaskiptingu. Hún skýtur 5 skotum á 0,48 sek eða 12 skotum á 1,442 sek Meðfærileg og skemmtileg gasskipt byssa sem er einungis 3 kíló, og tekur 3 skot. Byssuna er hægt að fá í þremur mismunandi útfærslum, en þær eru viðarskefti, svört synthetic (plast) eða í felulitum, tekur allt að 3,5”skot.


Aðrar útfærslur af byssunni geta tekið skot allt að 3,5”. Byssunni fylgir ólarfesting, 3 þrengingar og lykill fyrir þrengingar.


Winchester Sx3 fæst að sjálfsögðu í Ellingsen.