Merida hjól fyrir alla! Mest seldu hjólin í Noregi, nú loks á Íslandi.
Birt: 18/04 2012
Merida-hjólin eru hönnuð í Þýskalandi og framleidd af fremstu hjólaverksmiðju heims.
Merida-hjólin henta í allar tegundir hjólreiða, enda framleidd með það að leiðarljósi að þjóna bæði hinum almenna hjólreiðamanni og atvinnumanninum. Merida hefur verið mjög áberandi í stærstu hjólreiðakeppnum heims undanfarin ár. Á meðal þeirra sem nota Merida-hjól eru margfaldir heimsmeistarar á fjallahjólum á borð við Spánverjann Jose Hermida og norsku hjólreiðakonuna Gunn-Rita sem byrjaði að nota Merida-hjólin árið 2001 og hefur verið nánast ósigrandi síðan.
Í verslunum Ellingsen er mikið úrval af hjólum fyrir börn og fullorðna. Einnig er ótrúlegt úrval af aukahlutum fyrir reiðhjól og hjólreiðafatnaði fyrir allar aðstæður.
Á hjólreiðaverkstæði Ellingsen er boðið upp á að koma með hjólið í yfirhalningu mánuði eftir að það er keypt og ef eitthvað amar að taka starfsmenn verkstæðisins vel á móti þér.
Sjáðu úrvalið á ellingsen.is eða komdu í heimsókn og kynntu þér gæði Merida.
Flokkur: Reiðhjól | | Engar athugasemdir »
Reiðhjól fyrir alla frá Merida.
Birt: 20/02 2012
Nú fljótlega mun Ellingsen bjóða upp sérlega vönduð reiðhjól frá framleiðandanum Merida.
Merida býður upp á mjög stórt úrval af hjólategundum fyrir stóra sem smáa í mörgum verðflokkum. Reiðhjólin sem gerð eru eftir norskum hönnunar og gæðakröfum!
Þar á meðal eru heimsklassahjól sem eru notuð í keppnum út um allan heim, en Merida styrkir nokkra af sterkustu hjólreiðamönnum heims í dag.
Við erum að tala um: Barnahjól, fjallahjól, götuhjól, keppnishjól, freestyle, BMX og nýja kynslóð af rafmagnshjólum. Ekki nóg með að við munum bjóða upp á helstu vara- og aukahluti , heldur mun þjónustuverkstæði Ellingsen einnig bjóða upp á viðgerðar og viðhaldsþjónustu.
Nánari upplýsingar um merkið má sjá hér http://www.merida.no/
Flokkur: Reiðhjól, Ýmislegt | | Engar athugasemdir »


