Can-am Fjórhjól-kynnisferð með Björgunarsveitinni Kyndli Mosfellsbæ

Birt: 24/01 2011

Ellingsen fór með nokkrum félögum úr Björgunarsveitinni Kyndli í ferð núna sunnudaginn 23 janúar um nærsveitir Mosfellsbæjar til að prófa nýju Can-Am Outlander fjórhjólin.


Veðrið og færðin gerði ferðina skemmtilega en jafnframt krefjandi fyrir bæði menn og fjórhjól. Undirritaður var á Can-Am Outlander LTD og kom fjórhjólið skemmtilega á óvart. Flott fjöðrun og mjög þægilegt stýrið gerði það að verkum að þó svo að maður teljist ekki með allra reyndustu mönnum þá lét hjólið vel að stjórn við erfiðustu aðstæður. Þar sem að það var töluverð bleyta þá lentum við í reglulega mikilli drullu og var ótrúlegt hvað þessum fjórhjólum tókst að komast áfram.
En þegar hjólin voru í fjórhjóladrifinu og lága drifinu þá er greinilega fátt sem stoppar þau. Þægindin voru heldur ekki af verri endanum og skal taka það fram að fyrir mann sem teljist frekar handkaldur þá kom hitin í handföngum og bensíngjöf sér verulega vel!


Ferðafélagar okkar frá Kyndli voru greinilega mjög færir enda voru þeir mjög snöggir yfirferðar, sem kemur sér bara vel þegar þörf er á vöskum björgunarsveitarmönnum til leitar við allskyns aðstæður.
Fór það samt ekkert á milli mála að þeir báru virðingu fyrir náttúrunni og pössuðu menn sig vel á því að halda sig innan slóða.
Fengu nokkrir að prófa Can-Am Outlander og eins og sést á neðangreindu myndbandi þá var ekkert gefið eftir og ekki að sjá annað en að þetta volduga fjórhjól standi vel undir væntingum.



Við hjá Ellingsen viljum þakka ferðafélögum okkar frá Björgunarsveitinni fyrir skemmtilegan dag.

Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen

Birt: 10/12 2010

Jólagjöfin fæst í Ellingsen

Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.


Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.


Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.

Til hamingju Ása.


Jólakveðja,

Starfsfólk Ellingsen