Vinningshafar á Facebook
Birt: 03/01 2011
Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:
Ása Þorsteinsdóttir
Hulda Pálsdóttir
Helgi Sveinbjörnsson
Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.
Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Kerrur, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Vélsleðar | | Engar athugasemdir »
Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen
Birt: 10/12 2010
Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.
Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.
Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.
Til hamingju Ása.
Jólakveðja,
Starfsfólk Ellingsen
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Kerrur, Notað, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Vélsleðar, Ýmislegt | | 1 Athugasemd »
Góð mæting á opið hús hjá þjónustuverkstæði
Birt: 16/03 2010
Fyrir nokkrum dögum buðum við gestum og gangandi að skoða nýja þjónustuverkstæði Ellingsen. Fjölmargir komu og þáðu kaffi, kleinur og fleira meðlæti og spjölluðu við starfsmenn sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði. Nokkrir vélsleðar og fjórhjól voru á gólfinu þennan dag og mikið var rýnt ofan í vélar þeirra og fylgihlutir skoðaðir. Gestum bauðst að fá ráðgjöf hjá starfsmönnum þjónustuverkstæðisins og fjölmargir nýttu sér það. Eins og sjá má á myndunum á næstu síðu voru gestir á öllum aldri og litu út fyrir að skemmta sér konunglega.
Þjónustuverkstæðið býður í kaffi og kleinur
Birt: 02/03 2010
Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna mánuði við að koma upp þjónustuverkstæði Ellingsen að Vatnagörðum 12. Þó verkstæðið hafi verið opnað í byrjun janúar eins og stefnt var að stóðu iðnaðarmenn í ströngu næstu vikurnar við að setja upp lager og annað sem tilheyrir starfsemi sem þessari. Nú ætlum við að gera okkur glaðan dag og opna þjónustuverkstæðið með pompi og prakt með því að bjóða uppá kaffi og kleinur fimmtudaginn 4. mars frá klukkan 15-20. Þar gefst ykkur tækifæri til að sjá nýju aðstöðuna okkar og fá ráðgjöf frá sérfræðingum okkar. Við verðum með 20% afslátt af beltum og sannkallað grínverð á uppítökubeltum eða 9.900 – 19.900 kr. Smellið hér til að sjá kort af staðsetningu þjónustuverkstæðisins.
Flokkur: Bátavörur, Ferðatæki, Fjórhjól, Kerrur, Vélsleðar | Efni: þjónustuverkstæði | Engar athugasemdir »

