Adria mest selda hjólhýsið í Danmörku árið 2010

Birt: 10/02 2011

Bjartsýnin að leiðarljósi, þrátt fyrir erfitt seinasta ár þá er bjartsýnin farinn að vaxa aftur á hjólhýsamarkaðnum og hefur markaðshlutdeild Adria stækkað jafnt og þétt. Í dag er fjórði hver nýji vagn sem kemur á götuna í Danmörku merktur Adria á afturendanum.


- Seinustu tvö tímabil voru erfið fyrir markaðinn, en þau voru fín hjá okkur, segir Helmer Schimdt frá Adria Caravan og heldur áfram


- Við erum að sjá að Danir eru fyrir alvöru að opna augun fyrir mörgum gæðum Adria, og erum við að sjálfsögðu mjög ánægðir með það. En við höfum ekki hugsað okkur að slaka neitt á, heldur vinna að því að bjóða upp á alvöru hjólhýsi og halda áfram með lygilega góð verð.


Mikið af dönskum hugmyndum í Adria vögnum

Innflutningsaðili Adria í Danmörku hefur í gegnum árin átt í nánu samstarfi við verksmiðju Adria og þróunardeild þeirra, og hefur haft mikil áhrif á hönnun, innréttingar og notagildi – að sjálfsögðu í fullri samvinnu við hönnuði Adria. Mikið af búnaði og eiginleikum eru í raun byggðir á grunni og reynslu danska Adria hópsins.


Nú þegar að nýji og sterki 2011 árgangurinn er að hleypa af stokkunum trúir Helmer Schimdt að þessi jákvæða þróun og góða markaðshlutdeild haldist út næsta tímabil.


- Það er allavega ekki færri góðar ástæður til að velja Adria umfram aðra góðar tegundir vagna, endar hann með brosi.


Upplifðu sjálf/ur alvöru Adria hjólhýsi hjá okkur í Ellingsen þar sem 2011 árgerðin, sem við flytjum inn frá Danmörku, er til sýnis og sölu núna.


Sala á hjólhýsum í danmörku

Sala á hjólhýsum í danmörku


Can-am Fjórhjól-kynnisferð með Björgunarsveitinni Kyndli Mosfellsbæ

Birt: 24/01 2011

Ellingsen fór með nokkrum félögum úr Björgunarsveitinni Kyndli í ferð núna sunnudaginn 23 janúar um nærsveitir Mosfellsbæjar til að prófa nýju Can-Am Outlander fjórhjólin.


Veðrið og færðin gerði ferðina skemmtilega en jafnframt krefjandi fyrir bæði menn og fjórhjól. Undirritaður var á Can-Am Outlander LTD og kom fjórhjólið skemmtilega á óvart. Flott fjöðrun og mjög þægilegt stýrið gerði það að verkum að þó svo að maður teljist ekki með allra reyndustu mönnum þá lét hjólið vel að stjórn við erfiðustu aðstæður. Þar sem að það var töluverð bleyta þá lentum við í reglulega mikilli drullu og var ótrúlegt hvað þessum fjórhjólum tókst að komast áfram.
En þegar hjólin voru í fjórhjóladrifinu og lága drifinu þá er greinilega fátt sem stoppar þau. Þægindin voru heldur ekki af verri endanum og skal taka það fram að fyrir mann sem teljist frekar handkaldur þá kom hitin í handföngum og bensíngjöf sér verulega vel!


Ferðafélagar okkar frá Kyndli voru greinilega mjög færir enda voru þeir mjög snöggir yfirferðar, sem kemur sér bara vel þegar þörf er á vöskum björgunarsveitarmönnum til leitar við allskyns aðstæður.
Fór það samt ekkert á milli mála að þeir báru virðingu fyrir náttúrunni og pössuðu menn sig vel á því að halda sig innan slóða.
Fengu nokkrir að prófa Can-Am Outlander og eins og sést á neðangreindu myndbandi þá var ekkert gefið eftir og ekki að sjá annað en að þetta volduga fjórhjól standi vel undir væntingum.



Við hjá Ellingsen viljum þakka ferðafélögum okkar frá Björgunarsveitinni fyrir skemmtilegan dag.

Vinningshafar á Facebook

Birt: 03/01 2011

Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:


Ása Þorsteinsdóttir
Hulda Pálsdóttir
Helgi Sveinbjörnsson


Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.


Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.



Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen

Birt: 10/12 2010

Jólagjöfin fæst í Ellingsen

Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.


Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.


Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.

Til hamingju Ása.


Jólakveðja,

Starfsfólk Ellingsen

Prufukeyrsla Can Am 800ltd Outlander

Birt: 08/11 2010


Björgunarsveitir prufa Can Am Outlander

Björgunarsveitir prufa Can Am Outlander


Laugardaginn 6 nóvember komu góðir gestir í Ellingsen til að prufukeyra nýja Can Am 800 ltd Outlander árgerð 2011.


Það voru aðilar í Björgunarsveitunum Blakk á Patreksfirði og Björgunarsveitinni Tálkna á Tálknafirði sem keyrðu hjólið upp um hlíðar Úlfarsfells og fengu að finna mun á Can Am 800ltd outlander árg. 2009 og Can Am 800ltd Outlander árg. 2011 hjólunum.


Megin munur þessara tækja er rafmagnsstýri á 2011 hjólinu og loftdemparar sem er ekki á 2009 hjólinu. Það var mál manna að Outlander 2011 henti mun betur í slóðaleit þar sem ökumaður er miklu afslappaðri á því fjórhjóli heldur en á eldri árgerð vegna þess að hjólið er ekki að „refsa“ mönnum þegar það er keyrt.  Ökumanni ásamt farþega líður vel á fjórhjólinu  þegar fara þarf hratt yfir og hefur Can Am Outlander 800 ltd. yfirburði í mýkt og snerpu. Burðargetan á nýja hjólinu er rúmlega 270 kg og þegar pallur er settur á hjólið eða vatnsheldu boxin, þá er mjög þægilegt að ferja búnað á því.


(meira …)