Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen
Birt: 10/12 2010
Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.
Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.
Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.
Til hamingju Ása.
Jólakveðja,
Starfsfólk Ellingsen
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Kerrur, Notað, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Vélsleðar, Ýmislegt | | 1 Athugasemd »
Úlpan sem dugar alla leið
Birt: 21/10 2010
Í Ellingsen má nú finna eina flottustu og merkustu úlpuhönnun seinni tíma í dúnúlpunni Alaskan, sem sameinar allt sem þarf til dugandi og þægilegrar útivistar á vetrum.
Í Ellingsen má nú finna eina flottustu og merkustu úlpuhönnun seinni tíma í dúnúlpunni Alaskan, sem sameinar allt sem þarf til dugandi og þægilegrar útivistar á vetrum.
„Nýja Alaskan-dúnúlpan frá Columbia er eina sanna vetrarúlpan í ár, enda tímamótaflík að öllu leyti og nokkuð sem enginn annar úlpuframleiðandi getur státað af,“ segir Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, sölumaður í Ellingsen, sem einnig er margreyndur björgunarsveitarmaður og veit hvernig flíkur þurfa að vera til að duga á fjöllum og í íslensku vetrar- og vonskuveðri.
„Alaskan hefur hvorki meira né minna en 700-fill power dúnfyllingu, en algengt er að góðar dúnúlpur séu með 400 til 500-fill power. 700 er frábært því „fill power“ er mælikvarði á rúmmál dúns miðað við þyngd. Því hærra fill power, því betri er dúnninn, því hver þyngdareining gefur meiri einangrun. Dúnn með hátt fill power er auk þess endingarbetri og nánast lífstíðareign með réttri meðhöndlun,“ segir Ásbjörn.
Flokkur: Fatnaður | Efni: Columbia, Devold, Föt, Gönguföt, Klæðnaður, Öndunarföt, Útivist, Útivistarföt | 2 Athugasemdir »
Sumarmarkaður Ellingsen 22. júlí til 6. ágúst
Birt: 22/07 2010
Hinn árlegi Sumarmarkaður Ellingsen er hafinn!
Búðin er sprengsfull af vörum á tilboði frá 15% til 70% af verði og valdar vörur frá Columbia eru á 80% afslætti.
Eins og áður þá fara „góðu bitarnir“ fyrst og því gildir „fyrstir koma fyrstir fá“.
Ef þú ert að fara í útilegu og vantar Coleman gæðastól og skvísu með kæli þá er rétt að kíkja við á Fiskislóðina, nú eða vantar þig tjald? Fellihýsin hafa rokið út í sumar og allur viðlegubúnaður en við eigum enn fjöldann allan af vörum fyrir þig á Sumarmarkaðnum.
Ertu að fara í veiði? Strákarnir í veiðideildinni hafa dregið þá nokkra úr ám landsins í sumar og vilja ólmir segja þér frá því, góð veiðisaga er aldrei betri en þegar fjöldinn heyrir! Loop er á tilboði og allar aðrar stangveiðivörur og þeir í sumarskapi.
Fyrir gönguferðina þá eru starfsmenn Ellingsen tilbúnir að aðstoða þig að finna rétta fatnaðinn, hvort sem þú ætlar uppá Esju eða á Hornstrandir. Frá sokkum og upp í húfu.. (þarf hana á sumrin? ) að sjálfsögðu er Devold undirfatnaður á tilboði.
Degi er að farið að halla og nú þegar rómantískasti tími ársins er að hefjast með sinni fallegu birtu þá er ekki slæmt að vera með góð ljós af Sumarmarkaðnum.
Er fyrirhuguð ferð á Fjórhjóli um landið í ágúst en vantar hjólið? Komdu við og strákarnir í ferðatækjum taka vel á móti þér með kaffi og kræsnar sögur, já eða frábær tilboð.
Nú fer senn að líða að skotveiðitímabilinu og því er lag að skoða og yfirfara skotvopnin. Athuga hvað það er sem vantar, er hanskinn síðan í fyrra týndur? Eða varstu ekki nógu vel falinn í fyrra? Jói byssusmiður veit eitt og annað í því samhengi. Á Sumarmarkaði mælum við með liggibyrgi fyrir næstu vertíð.
Sumarmarkaðurinn stendur fram að verslunarmannahelgi og nú er rétti tíminn að ná í vörur sem vantar fyrir síðustu ferðir sumarsins þótt að við ferðumst um landið allt árið.
Njótum ferðalagsins og göngum um landið með virðingu og tryggjum öryggi alla leið.
Flokkur: Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Ýmislegt | | Engar athugasemdir »
Devold undirfatnaður
Birt: 16/07 2010
Við erum mjög stolt að hafa til sölu í Ellingsen, Devold fatnað sem er einhver besti ullarundirfatnaður sem völ er á. Devold er norskur framleiðandi sem hóf framleiðslu á ullarfatnaði árið 1853. Ull í hæsta gæðaflokki er aðalsmerki þessa virta framleiðanda og hafa menn bæði til sjós og lands reitt sig á þau við erfiðar aðstæður.
Krafan um aukin þægindi í fatnaði hefur vaxið mikið síðan Devold hóf framleiðslu. Fyrirtækið hefur lagt mikla áherslu á að uppfylla kröfur nútímans hvað þetta varðar og það má segja að það sé lykillinn af velgengi fyrirtækisins öll þessi ár.
Mikil vöruþróun á sér stað og hjá Devold og nýjar vörur með nútímalegu útliti og eiginleikum í bland við aðrar hefðbundnari sjá dagsins ljós með reglulegu millibili. Við hjá Ellingsen höfum reynt að hafa sem mesta úrvalið af Devold fatnaði en okkar viðskiptavinir geta þó alltaf gengið að hinum hefðbundnu vörum Devold s.s. ullarbolum með mismunandi útfærslum og föðurlandi.
Flokkur: Fatnaður | Efni: Devold, föðurland, ullarbolir, undirföt, Útivistarföt | Engar athugasemdir »
Nýjar vörur daglega
Birt: 09/04 2010
Það er hamagangur í öskjunni þessa dagana því verið er að taka nýjar vörur uppúr kössum og koma þeim fyrir í hillur. Á þessum tíma ársins víkja vetrarvörur fyrir sumarvörum og alltaf gaman að sjá hvað kemur uppúr kössunum. Fyrir skömmu settum við í hillurnar og á vefsíðuna skólínu sumarsins frá Columbia. Þar eru um breiða flóru að ræða allt frá léttum sport- og gönguskóm uppí háa og mikla gönguskó fyrir erfiða slóða. Nú er einnig kominn á slár og í hillur fatnaður frá Didriksons. Á meðfylgjandi myndum má sjá nokkra jakka og galla frá þessum norska framleiðanda. Við leyfum ykkur að fylgjast með því sem við setjum í hillurnar á næstu dögum.
Flokkur: Fatnaður, Skór | Efni: Columbia, Didriksons | Engar athugasemdir »






