Ertu tilbúinn í gönguna? Ueli Steck mælir með Mountain Hardware!

Birt: 13/04 2012

Ueli Steck er einn færasti klifrari heims í dag og tekur hann núna þátt í verkefni með Mountain Hardware í þróun á næstu kynslóð af göngu og klifurbúnaði. Hugsunin er að gera búnaðinn eins léttan og einfaldan í notkun og mögulegt er.


Ueli Steck: „to reduce the weight of my equipment and yet remain the quality is as challenging as important – here’s how it’s done.“


Ellingsen býður að sjálfsögðu upp á hágæða vörur fyrir útivistina og þar með talið vörur sem að Ueli Steck mælir með, sjá sem dæmi Mountain Hardware Summit Rocket bakpokann.


Nú er tíminn til að koma í Ellingsen og gera sig tilbúinn fyrir göngurnar í sumar!



Ellingsen hefur fengið í sölu frábært viðgerðarefni fyrir nánast öll efni í leik og í starfi

Birt: 24/02 2012


Tear-aid B

Tear-aid B


Þetta er frábær viðbót í flóru Ellingsen, og á heima í bakpoka útivistar-, veiði-, vélsleða- , fjórhjóla-,  og ferðafjölskyldna. Staðbundnar viðgerðir verður leikur einn þegar Tear-Aid er með í för. Tvær týpur eru af þessum plástri, A – og B – týpur. A-týpan er fyrir nánast öll efni fyrir utan PVC og Vinyl og B- týpan er fyrir PVC og Vinyl. Nú skiptum við út duct teipum og notum varanlegar lausnir þegar við lendum í vandræðum á fjöllum eða í fjöru.

Frábært viðgerðarefni á nánast allt. Lagar göt á rifur, þannig að ekki rifnar meir. Tjald, bíltoppur, bakpokinn, sætisáklæði, leður, vöðlur, fatnaður, loftdýnur, markísur, ofl. Hvort sem er fyrir PVC/VINYL eða annað.


Tear-Aid er ómissandi viðgerðaplástur fyrir nánast allt í leik og / eða starfi.
Tear-Aid er gríðalega sterkur og endingargóður gegnsær plástur sem notaður er til viðgerðar á rifum og götum á nánast öllum efnum og mjög teygjanlegt. Tear-Aid er ekki tímabundin lausn heldur varanleg viðgerð sem á heima í öllum viðlegubúnaði, í bílnum, bátnum, heima og að heiman.  Tear-Aid er notað til viðgerðar á meðal annars tjöldum, bakpokum, útivistarfatnaði, regnfatnaði, öllum „tex“ fatnaði,  svefnpokum, dúnúlpum, jökkum, töskum, upplásanlegum dýnum, bátum, sundkútum ofl. Einnig  hentar plásturinn á vörur  úr áli, ryðfríu stáli, trefjaplasti og fleira. Tear-Aid er í tveim tegundum A og B. Báðar gerðir hafa sömu einskaklega eiginleika nema þeir geta verið notaðir á mismundandi efni.


Helstu eiginleikar: Auðvelt í meðhöndlun, mjög sterkt, vatnsþétt, loftþétt, mjög teygjanlegt, eyðist ekki, verulega fjölhæft, þornar ekki, varanlegt




Nýtt vörumerki í Ellingsen

Birt: 02/11 2011

Nú höfum við tekið inn nýjar vörur frá Mountain Hardware sem er fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að bjóða upp á vandaðar vörur fyrir kröfuhart fjallafólk. Mountain Hardware útivistarvörurnar eru meðal annars útivistarfatnaður fyrir karla, konur og börn. Einnig tjöld, svefnpokar, bakpokar sem eru sérhannaðar vörur til að takast á við hvað erfiðar aðstæður á fjöllum.
Mountain Hardware heldur uppi háðum gæðastaðli með því að sameina nýjungar og með sérstakri áherslu á smáatriðin. Það að þeir bjóði æviábyrgð á sínum vörum segir segir það sem þarf um þeirra metnað um að bjóða upp á hágæða vörur. Nú þegar eru komnar nokkrar vörur til sýnis og sölu í verslun okkar að Fiskislóð 1 og munum við svo vöruúrvalið aukast jafnt og þétt með haustinu.

Ellingsen leggur höfuðáherslu á að hafa ávallt vandaðar og hagstæðar vörur á boðstólnum og fellur Mouintain Hardware vel inn í það magnaða vöruúrval sem er nú þegar til boða.






Can-am Fjórhjól-kynnisferð með Björgunarsveitinni Kyndli Mosfellsbæ

Birt: 24/01 2011

Ellingsen fór með nokkrum félögum úr Björgunarsveitinni Kyndli í ferð núna sunnudaginn 23 janúar um nærsveitir Mosfellsbæjar til að prófa nýju Can-Am Outlander fjórhjólin.


Veðrið og færðin gerði ferðina skemmtilega en jafnframt krefjandi fyrir bæði menn og fjórhjól. Undirritaður var á Can-Am Outlander LTD og kom fjórhjólið skemmtilega á óvart. Flott fjöðrun og mjög þægilegt stýrið gerði það að verkum að þó svo að maður teljist ekki með allra reyndustu mönnum þá lét hjólið vel að stjórn við erfiðustu aðstæður. Þar sem að það var töluverð bleyta þá lentum við í reglulega mikilli drullu og var ótrúlegt hvað þessum fjórhjólum tókst að komast áfram.
En þegar hjólin voru í fjórhjóladrifinu og lága drifinu þá er greinilega fátt sem stoppar þau. Þægindin voru heldur ekki af verri endanum og skal taka það fram að fyrir mann sem teljist frekar handkaldur þá kom hitin í handföngum og bensíngjöf sér verulega vel!


Ferðafélagar okkar frá Kyndli voru greinilega mjög færir enda voru þeir mjög snöggir yfirferðar, sem kemur sér bara vel þegar þörf er á vöskum björgunarsveitarmönnum til leitar við allskyns aðstæður.
Fór það samt ekkert á milli mála að þeir báru virðingu fyrir náttúrunni og pössuðu menn sig vel á því að halda sig innan slóða.
Fengu nokkrir að prófa Can-Am Outlander og eins og sést á neðangreindu myndbandi þá var ekkert gefið eftir og ekki að sjá annað en að þetta volduga fjórhjól standi vel undir væntingum.



Við hjá Ellingsen viljum þakka ferðafélögum okkar frá Björgunarsveitinni fyrir skemmtilegan dag.

Vinningshafar á Facebook

Birt: 03/01 2011

Starfsfólk Ellingsen óskar eftirfarandi vinningshöfum til hamingju með gjafabréfin:


Ása Þorsteinsdóttir
Hulda Pálsdóttir
Helgi Sveinbjörnsson


Við vonum að þau hafi komið að góðum notum.


Um leið óskum við öllum viðskiptavinum og velunnurum Ellingsen gleðilegs árs.