Góð mæting á opið hús hjá þjónustuverkstæði

Birt: 16/03 2010

Fyrir nokkrum dögum buðum við gestum og gangandi að skoða nýja þjónustuverkstæði Ellingsen. Fjölmargir komu og þáðu kaffi, kleinur og fleira meðlæti og spjölluðu við starfsmenn sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði. Nokkrir vélsleðar og fjórhjól voru á gólfinu þennan dag og mikið var rýnt ofan í vélar þeirra og fylgihlutir skoðaðir. Gestum bauðst að fá ráðgjöf hjá starfsmönnum þjónustuverkstæðisins og fjölmargir nýttu sér það. Eins og sjá má á myndunum á næstu síðu voru gestir á öllum aldri og litu út fyrir að skemmta sér konunglega.

(meira …)

Þjónustuverkstæðið býður í kaffi og kleinur

Birt: 02/03 2010

Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna mánuði við að koma upp þjónustuverkstæði Ellingsen að Vatnagörðum 12. Þó verkstæðið hafi verið opnað í byrjun janúar eins og stefnt var að stóðu iðnaðarmenn í ströngu næstu vikurnar við að setja upp lager og annað sem tilheyrir starfsemi sem þessari. Nú ætlum við að gera okkur glaðan dag og opna þjónustuverkstæðið með pompi og prakt með því að bjóða uppá kaffi og kleinur fimmtudaginn 4. mars frá klukkan 15-20. Þar gefst ykkur tækifæri til að sjá nýju aðstöðuna okkar og fá ráðgjöf frá sérfræðingum okkar. Við verðum með 20% afslátt af beltum og sannkallað grínverð á uppítökubeltum eða 9.900 – 19.900 kr. Smellið hér til að sjá kort af staðsetningu þjónustuverkstæðisins.

10 góðar ástæður fyrir vali á Evinrude E-TEC

Birt: 02/02 2010

Evinrude bættist fyrir ekki löngu síðan í vöruflóru framleiðandans BRP sem framleiðir meðal annars Ski-doo, Lynx og Can-am. Evinrude hafði árin á undan náð góðum árangri með hönnun og þróun á nýrri tækni sem kallast E-TEC sem gekk í stuttu máli útá endurhönnun á tvígegnisvélum. BRP sá mikla samnýtingarmöguleika í þessari tækni og þeim tækjum sem þeir framleiddu og keyptu því hið 100 ára gamla vörumerki Evinrude/Johnson.


Eftirfarandi listi sem kemur úr smiðju BRP sýnir svart á hvítu 10 góðar ástæður fyrir því að velja Evinrude E-TEC utanborðsmótora.

(meira …)

Litið við á þjónustuverkstæðið

Birt: 29/01 2010

Um áramótin var þjónustuverkstæði Ellingsen flutt í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 12. Einnig voru ráðnir nýir starfsmenn enda hafa umsvif þjónustuverkstæðisins aukist til muna eftir að Ellingsen tók við nýjum umboðum. Það gekk á ýmsu þessa fyrstu daga í janúar en með áræðni tókst starfsmönnum þjónustuverkstæðisins að opna viðgerðarsal og taka á móti fyrstu tækjunum.


Eins og sést á myndunum sem fylgja þessum skrifum er nú verið að standsetja lager og móttöku varahluta. Húsakynnin eru eins og best verður á kosið eins og sést á myndunum. Smellið á eina af myndunum til að skoða þær allar stækkaðar í spilara og fléttið á milli þeirra með því að smella á ör til hægri á hverri mynd.

(meira …)