Grillin frá Ellingsen nota Smellugas Olís

Birt: 26/05 2010

Grillin sem seld eru í Ellingsen eru með þrýstijafnara fyrir Smellugas Olís. Okkur þykir því við hæfi að kynna örlítið þessa nýjung á gasmarkaði á Ellingsenblogginu. Það eru kannski ekki allir sem vita og ágætt að það komi fram að Olís sem selur Smellugasið er móðurfyrirtæki Ellingsen.


Innihald Smellugaskútanna þ.e.a.s. gasið er það sama og verið hefur í notkun á Íslandi í gegnum tíðina eða svokallað própan gas og engin breyting þar á. Munurinn á Smellugaskútunum og kútunum frá Gasfélaginu sem Olís seldi áður er hinsvegar sá að á Smellugaskútunum er hálsinn gerður fyrir aðra tegund af þrýstijafnara sem er smellt á kútinn í stað þess að vera skrúfaður á hann.


Þetta kerfi þekkja margir Íslendingar því það var notað hér á landi áður fyrr ásamt því skrúfaða.


(meira …)

Primus EtaPower Ef gashella

Birt: 21/05 2010

Ellingsen hefur mikið úrval af gasvörum bæði fyrir fyrir grillin og pallahitarana og einnig fyrir ferðalangann þar sem pláss, þyngd og ending skipta miklu máli. Eitt fremsta fyrirtækið á sviði gasvara er sænska fyrirtækið Primus. Sífelld vöruþróun á sér stað hjá fyrirtækinu og vöruflóran gríðalega spennandi fyrir fólk sem hefur áhuga á ferðalögum og útivist.


Við erum með til sölu í Ellingsen Primus EtaPower Ef gashellu sem selst um allan heim eins og heitar lummur og margrómuð í tímaritum sem fjalla um útivist. Í vörulýsingu segir, „Primus hannaði EtaPower Ef trail settið sem léttari valkost fyrir ferðalanga. Fyrirrennari hans fékk Editor´s verðlaun 2007 hjá Backpackers Magazine en var eilítið þyngri. Frábær hönnun til að ferðast með og ótrúlega léttur eða 775 gr. Kemur með „magnetu“ til að kveikja með. Brennarinn gefur hámarks nýtingu á gasinu. Gashylki er skrúfað í. Vindhlíf fylgir og 1.7 lítra pottur. Þetta er s.s einn sá léttasti fyrir bakpokaferðina og er fínn fyrir 2-3. Fljótur, stöðugur og léttur“.


Hér að neðan er myndband sem Primus hefur gert um þessa vöru. Í því er farið yfir ágæti vörunnar og byltingakennda hönnun hennar sem gerir það að verkum að gasið endist mun lengur en í venjulegum gashellum.


Íslenski fáninn. Stolt þjóðar og þjóðararfur.

Birt: 02/03 2010

Íslenski fáninnÞjóðfáni okkar er mikið prýði og einkennir okkur íslendinga á erlendri grund sem og hér heima. Falleg fánastöng með íslenska fánann dregin að hún er hvers manns prýði. Og hver þekkir það ekki að líta við, þegar ferðast er erlendis og við sjáum þjóðfána okkar blasa við. Oftast brosir hjartað okkar eilítið við það. Á kappleikjum hér heima og erlendis er gott að horfa á fánalitina og fyllir mann elju að sama skapi.


En fánann okkar ber að fara með virðingu og stolti. Hér að neðan er farið í fánareglur okkar, meðferð fánans, fánadaga og fróðleik um liti fánans og hvaða reglur gilda með fánaveifur og vimpla.

(meira …)