Ellingsen er þáttakandi í verkefninu: Ísland allt árið
Birt: 29/02 2012
Icelanders invite you
Íslander – 1 minute trailer from Inspired By Iceland on Vimeo.
Flokkur: Ýmislegt | | Engar athugasemdir »
Ellingsen hefur fengið í sölu frábært viðgerðarefni fyrir nánast öll efni í leik og í starfi
Birt: 24/02 2012
Þetta er frábær viðbót í flóru Ellingsen, og á heima í bakpoka útivistar-, veiði-, vélsleða- , fjórhjóla-, og ferðafjölskyldna. Staðbundnar viðgerðir verður leikur einn þegar Tear-Aid er með í för. Tvær týpur eru af þessum plástri, A – og B – týpur. A-týpan er fyrir nánast öll efni fyrir utan PVC og Vinyl og B- týpan er fyrir PVC og Vinyl. Nú skiptum við út duct teipum og notum varanlegar lausnir þegar við lendum í vandræðum á fjöllum eða í fjöru.
Frábært viðgerðarefni á nánast allt. Lagar göt á rifur, þannig að ekki rifnar meir. Tjald, bíltoppur, bakpokinn, sætisáklæði, leður, vöðlur, fatnaður, loftdýnur, markísur, ofl. Hvort sem er fyrir PVC/VINYL eða annað.
Tear-Aid er ómissandi viðgerðaplástur fyrir nánast allt í leik og / eða starfi.
Tear-Aid er gríðalega sterkur og endingargóður gegnsær plástur sem notaður er til viðgerðar á rifum og götum á nánast öllum efnum og mjög teygjanlegt. Tear-Aid er ekki tímabundin lausn heldur varanleg viðgerð sem á heima í öllum viðlegubúnaði, í bílnum, bátnum, heima og að heiman. Tear-Aid er notað til viðgerðar á meðal annars tjöldum, bakpokum, útivistarfatnaði, regnfatnaði, öllum „tex“ fatnaði, svefnpokum, dúnúlpum, jökkum, töskum, upplásanlegum dýnum, bátum, sundkútum ofl. Einnig hentar plásturinn á vörur úr áli, ryðfríu stáli, trefjaplasti og fleira. Tear-Aid er í tveim tegundum A og B. Báðar gerðir hafa sömu einskaklega eiginleika nema þeir geta verið notaðir á mismundandi efni.
Helstu eiginleikar: Auðvelt í meðhöndlun, mjög sterkt, vatnsþétt, loftþétt, mjög teygjanlegt, eyðist ekki, verulega fjölhæft, þornar ekki, varanlegt
Flokkur: Bakgarðurinn, Bátavörur, Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Skotveiði, Stangveiði | | Engar athugasemdir »
Reiðhjól fyrir alla frá Merida.
Birt: 20/02 2012
Nú fljótlega mun Ellingsen bjóða upp sérlega vönduð reiðhjól frá framleiðandanum Merida.
Merida býður upp á mjög stórt úrval af hjólategundum fyrir stóra sem smáa í mörgum verðflokkum. Reiðhjólin sem gerð eru eftir norskum hönnunar og gæðakröfum!
Þar á meðal eru heimsklassahjól sem eru notuð í keppnum út um allan heim, en Merida styrkir nokkra af sterkustu hjólreiðamönnum heims í dag.
Við erum að tala um: Barnahjól, fjallahjól, götuhjól, keppnishjól, freestyle, BMX og nýja kynslóð af rafmagnshjólum. Ekki nóg með að við munum bjóða upp á helstu vara- og aukahluti , heldur mun þjónustuverkstæði Ellingsen einnig bjóða upp á viðgerðar og viðhaldsþjónustu.
Nánari upplýsingar um merkið má sjá hér http://www.merida.no/
Flokkur: Reiðhjól, Ýmislegt | | Engar athugasemdir »










