Nýju vélsleðarnir komnir til landsins!

Birt: 28/11 2011

Ski-Doo og Lynx vélsleðarnir árgerð 2012 er komnir til landsins og er byrjað að standsetja þá núna.

Komnir inn á gólf.

Komnir inn á gólf.







Nýtt vörumerki í Ellingsen

Birt: 02/11 2011

Nú höfum við tekið inn nýjar vörur frá Mountain Hardware sem er fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að bjóða upp á vandaðar vörur fyrir kröfuhart fjallafólk. Mountain Hardware útivistarvörurnar eru meðal annars útivistarfatnaður fyrir karla, konur og börn. Einnig tjöld, svefnpokar, bakpokar sem eru sérhannaðar vörur til að takast á við hvað erfiðar aðstæður á fjöllum.
Mountain Hardware heldur uppi háðum gæðastaðli með því að sameina nýjungar og með sérstakri áherslu á smáatriðin. Það að þeir bjóði æviábyrgð á sínum vörum segir segir það sem þarf um þeirra metnað um að bjóða upp á hágæða vörur. Nú þegar eru komnar nokkrar vörur til sýnis og sölu í verslun okkar að Fiskislóð 1 og munum við svo vöruúrvalið aukast jafnt og þétt með haustinu.

Ellingsen leggur höfuðáherslu á að hafa ávallt vandaðar og hagstæðar vörur á boðstólnum og fellur Mouintain Hardware vel inn í það magnaða vöruúrval sem er nú þegar til boða.