Veiðirifflamót Ellingsen 24. júlí 2011

Birt: 03/08 2011

Veiðirifflamót Ellingsen var haldið laugardaginn 24. júlí. Áður hafði því verið frestað vegna veðurs, en þrátt fyrir það vorum við mjög óheppin með veðrið þennan dag og það má segja að keppnin á 300 metrum hafi fokið út í veður og vind. Það gekk á með suð-austanátt og rigningu og ákveðið var að láta stigatölu á 100 metrum gilda til sigurs og nota skífur sem þola vel rigninu og vind.

Þátttaka var góð, 15 skyttur með mismunandi búnað tóku þátt. Skotið var af tvífæti á 300 metrum, en eins og áður sagði þá eru engir til frásagnar um stigatölu þar, og á 100 metrum var 10 skotum skotið fríhendis.


Úrslit voru sem hér segir:


1. Guðjón Freyr (Laxi)   84 stig. Gullverðlaun + 50.000 kr. gjafabréf í Ellingsen
2. Filipus Sigurðsson     83 stig. Silfurverðlaun + RCBS Rock Chucker hleðslupressa
3. Kjartan Friðriksson   79 stig. Bronsverðlaun + RCBS púðurskammtari