Umhirða og viðhald grillsins

Birt: 06/06 2011

Jæja, þá er grillvertíðin hafin og væntanlega margir búnir að gera grillið klárt fyrir sumarið. Sá sem þetta skrifar grillar reyndar allt árið en bætir þó verulega í á sumrin, mér segir sá hugur að þannig sé það hjá flestum.


Það eru spennandi hlutir að gerast í grillbransanum ef svo má að orði komast því Olís, móðurfyrirtæki Ellingsen hefur innleitt nýja gaskúta og þrýstijafnara sem kallast Smellugas, upplýsingar um það má finna á Smellugas.is. Grillin sem seld eru í Ellingsen eru öll útbúin fyrir Smellugas, sjá grill.


Okkur langar að deila með ykkur nokkrum punktum um það hvernig á að meðhöndla grillið svo það endist sem best og eldamennskan verði sem ánægjulegust á hreinu grilli.

Eftir notkun

Þú átt að umgangast grillið eins og bakarofninn, pottana og pönnurnar á heimilinu. Eftir hverja notkun þarf að þrífa grindurnar og mikilvægt er að hreinsa reglulega fitu úr botninum. Sumir kvarta yfir því að það kvikni eldur þegar verið er að grilla en ástæðan er oftast sú að það kviknar í fitunni sem safnast hefur fyrir. Gott er að hafa grillið í gangi í 10 mínútur eftir að matreiðslu er lokið til að brenna fituna. Það er mjög gott að setja hlíf yfir grillið þegar það er ekki í notkun og nauðsynlegt fyrir þá sem geyma grillið úti yfir veturinn.

Eldunarfletir

Hreinsaðu krómaða fleti með sápuvatni. Þurrkaðu vandlega og geymdu grindina inni þangað til grillað er næst. Best er að þrífa keramikfleti með sápuvatni. Þvoðu steypujárnið úr sápuvatni. Þerraðu vandlega og berðu dálítið af jurtaolíu á svæðið. Best er að þrífa steypujárnið eftir hverja notkun.

Hreinsun brennara og annars búnaðar

Hreinsaðu brennarann á tveggja til þriggja mánaða fresti. Stíflanir í blendipípunum gætu valdið íkveikju. Slökktu tafarlaust á grillinu ef eldur kviknar í blendipípunum.

Grillið geymt

Ef þú geymir grillið innandyra er áríðandi að taka gaskútinn frá grillinu og geyma hann utandyra þar sem sól nær ekki að skína beint á hann og fjarri eldfimum efnum. Geymdu gaskútinn ekki í kjallara, óloftræstu rými eða þar sem börn ná til hans.
Ef þú ætlar að geyma grillið til langtíma t.d. yfir veturinn er gott að hreinsa ristarnar, fjarlægja brenninn og bera á matarolíu. Þessa hluta skalltu geyma innandyra þó svo í lagi sé að geyma sjálft grillið úti ef þú setur hlíf á það.
Ef þú geymir grillið úti er gott að binda grillið við t.d. svalahandrið þannig að það eigi ekki á hættu á að fjúka um koll í miklu roki.

Grillið þrifið að innan

Fjarlægðu efsta hlutann af grillinu (eldunarflötinn og geislaplötu). Hreinsaðu grillið að innanverðu og botninn með grillhreinsilegi samkvæmt leiðbeiningum á grillhreinsibrúsanum. Hreinsaðu fituna af glugganum á grillinu með þar til gerðum hreinsilegi og notaðu aðeins mjúkan klút. Skiptu um hitaendurkastara eftir þörfum.


6 Athugasemdir

  1. Birgir Finnbogason segir:

    Er eigandi að þriggjabrennara grilli frá ykkur. Hvaða varahluti hefi þið í þessi grill?

  2. Ellingsen segir:

    Sæll Birgir

    Já það eru til grindur og brennarar fyrir þessi grill hjá okkur.
    Endilega hafa samband við hann Kristján hjá okkur og hann getur aðstoðað þig varðandi framhaldið.

  3. Sveinn Pálsson segir:

    ER eigandi að grilli sem er eins og Ellingsen 4 svart (53074) þetta grill skilst mér að sé síðasta grillið áður en núverandi grill kom. Grillið hefur alltaf verið geymt inni á veturna og vel hugsað um það á allan hátt, samt entust ekki brennararnir nema í fjögur ár, sem sagt fituplatan ,brennarar og hlífar ryðgað í sundur á fjórum árum, sem verður að teljast léleg ending. Þá er það spurningin, hvað kosta fjórir brennarar,hlífar yfir brennara, plata fyrir fytu og grindurnar?

    Kveðja Sveinn Pálsson sími 8934401

  4. Ellingsen segir:

    Sæll Sveinn

    Í raun telst 4 ár alls ekkert slæm ending, sérstaklega miðað við aðstæður okkar hér á íslandi. Sem segir að þú hafir hugsað vel um þitt grill.
    En við eigum þetta til fyrir þig og viljum biðja þig um að hafa samband við hann Kristján hjá okkur í Ellingsen Fiskislóð 1, beint í síma: 840 1707 og hann aðstoðar þig með framhaldið.

  5. Perla S. Hilmarsd. segir:

    Daginn. Hver er verðmiðin á þessu grilli?

  6. Ellingsen segir:

    Sæl Perla

    Hvaða grill áttu sérstaklega við?
    Hérna eru þau gasgrill sem að við höfum í boði núna:
    http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/flokkur/6210

    En við erum að bæta þetta vöruúrval með nýjum grillum sem eru á leið í hús fljótlega :)

Skrifa athugasemdir