Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen Úrslit
Birt: 28/06 2011
Við hjá Ellingsen viljum þakka ykkur öllum fyrir góða þátttöku og skemmtileg mót
Og óskum ykkur góðs gengis á næstu mótum , sjáumst að ári.
Fyrir hönd Ellingsen
Jói byssusmiður
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Veiðirifflamót Ellingsen 3. Júlí 2011
Birt: 27/06 2011
Mótið verður haldið á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur í Álfsnesi og hefst Kl. 11.00 . Keppt verður á 100 metrum og 300 metrum.
Keppnisfyrirkomulag: Skotið er á sérútbúnar Ellingsen skífur á báðum færum.
Á 100 metrum er skotið 10 skotum standandi staða án stuðnings, skot tími 10 mínútur.
Á 300 metrum er skotið 10 skotum ,aðeins leifðir tvífætur til stuðnings og aftur púðar bannaðir, skot tími 10 mínútur.
Skilyrði að skjóta bæði færin með sama rifflinum.
Þetta er ein keppni þannig að samanlagt skor á 100 og 300 metrum gefur verðlaun. Ekki eru gefin sérstök verðlaun fyrir 100 og 300 metra .
Reglur rifflar: Allar hlaupvíddir og sjónaukar leifðar. Allir veiðirifflar hvort sem er verksmiðju eða sérsmíðaðir eru leyfðir, sérsmíðaðir bench rest rifflar ekki leyfðir. (3” forskefti ekki leyfð)
Allur aukabúnaður eins og ólar, skot jakkar og vettlingar ekki leyfðir.
Ekkert keppnisgjald, bara góða skapið!
Glæsileg verðlaun
1. Gjafabréf frá Ellingsen að verðmæti 50.000 Kr.
2. RCBS Rock Chucher hleðslupressa að verðmæti. 39.990 K.r
3. RCBS Púðurskammtari að verðmæti 23.490 Kr.
Umsjónarmenn og dómarar
Jóhann Vilhjálmsson
Kristmundur Skarphéðinsson
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Kastað til bata
Birt: 23/06 2011
Endurhæfing fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.
Veiðin snýst um að kasta, vona og landa. Auk þess er Kastað til bata tækifæri til að sameina líkamlega hreyfingu, kynnast konum með svipaða reynslu og síðast en ekki síst að finna þrótt, kraft og gleði í náttúrunni. Konur á öllum aldri sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa greinst með brjóstakrabbamein upplifa að Kastað til bata snýst um það að hafa gaman af lífinu, takast á við það og sigra sjálfar sig.
Flokkur: Stangveiði, Ýmislegt | Efni: Kastað til bata, Krabbameinsfélag Íslands, Sogið, stangveiði, Styrkja | Engar athugasemdir »
Jónsmessumót Skotreynar & Ellingsen
Birt: 21/06 2011
Jónsmessumót Skotreynar í samvinnu við Ellingsen verður haldið laugardaginn 25 júní á skotæfingarsvæði Skotreynar.
Mæting kl 11:30 mót hefst kl 12:00. Skotnar verða 60 dúfur plús 25 í final. Þátttökugjald 2.000kr.
25 sporting velli 2
25 sporting velli 3
10 rabbit
Keppt verður að vanda í 2 flokkum.
Eingöngu er leyfilegt að keppa með WINCHESTER skotum og hvetjum við alla til að fara í Ellingsen og ná sér í skot fyrir helgina.
Keppt er um Farand bikar „Ellingsen bikarinn“
Og verðlaun eru eftirfarandi
1 sæti Farandbikar + Gullpeningur + 500 Winchesterskot
2 sæti Silfurpeningur + Winchester byssupoki
3 sæti Bronz peningur + Winchester húfa
Flokkur: Skotveiði | | Engar athugasemdir »
Umhirða og viðhald grillsins
Birt: 06/06 2011
Jæja, þá er grillvertíðin hafin og væntanlega margir búnir að gera grillið klárt fyrir sumarið. Sá sem þetta skrifar grillar reyndar allt árið en bætir þó verulega í á sumrin, mér segir sá hugur að þannig sé það hjá flestum.
Það eru spennandi hlutir að gerast í grillbransanum ef svo má að orði komast því Olís, móðurfyrirtæki Ellingsen hefur innleitt nýja gaskúta og þrýstijafnara sem kallast Smellugas, upplýsingar um það má finna á Smellugas.is. Grillin sem seld eru í Ellingsen eru öll útbúin fyrir Smellugas, sjá grill.
Flokkur: Bakgarðurinn | Efni: Grill, Smellugas | 2 Athugasemdir »

