Adria mest selda hjólhýsið í Danmörku árið 2010

Birt: 10/02 2011

Bjartsýnin að leiðarljósi, þrátt fyrir erfitt seinasta ár þá er bjartsýnin farinn að vaxa aftur á hjólhýsamarkaðnum og hefur markaðshlutdeild Adria stækkað jafnt og þétt. Í dag er fjórði hver nýji vagn sem kemur á götuna í Danmörku merktur Adria á afturendanum.


- Seinustu tvö tímabil voru erfið fyrir markaðinn, en þau voru fín hjá okkur, segir Helmer Schimdt frá Adria Caravan og heldur áfram


- Við erum að sjá að Danir eru fyrir alvöru að opna augun fyrir mörgum gæðum Adria, og erum við að sjálfsögðu mjög ánægðir með það. En við höfum ekki hugsað okkur að slaka neitt á, heldur vinna að því að bjóða upp á alvöru hjólhýsi og halda áfram með lygilega góð verð.


Mikið af dönskum hugmyndum í Adria vögnum

Innflutningsaðili Adria í Danmörku hefur í gegnum árin átt í nánu samstarfi við verksmiðju Adria og þróunardeild þeirra, og hefur haft mikil áhrif á hönnun, innréttingar og notagildi – að sjálfsögðu í fullri samvinnu við hönnuði Adria. Mikið af búnaði og eiginleikum eru í raun byggðir á grunni og reynslu danska Adria hópsins.


Nú þegar að nýji og sterki 2011 árgangurinn er að hleypa af stokkunum trúir Helmer Schimdt að þessi jákvæða þróun og góða markaðshlutdeild haldist út næsta tímabil.


- Það er allavega ekki færri góðar ástæður til að velja Adria umfram aðra góðar tegundir vagna, endar hann með brosi.


Upplifðu sjálf/ur alvöru Adria hjólhýsi hjá okkur í Ellingsen þar sem 2011 árgerðin, sem við flytjum inn frá Danmörku, er til sýnis og sölu núna.


Sala á hjólhýsum í danmörku

Sala á hjólhýsum í danmörku