Winchester Sx3 er hraðasta hálfsjálfvirka byssa sem völ er á

Birt: 17/12 2010

Winchester Sx3 er hraðasta hálfsjálfvirka byssa sem völ er á. Þessi byssa er með heimsmet í hraðaskiptingu. Hún skýtur 5 skotum á 0,48 sek eða 12 skotum á 1,442 sek Meðfærileg og skemmtileg gasskipt byssa sem er einungis 3 kíló, og tekur 3 skot. Byssuna er hægt að fá í þremur mismunandi útfærslum, en þær eru viðarskefti, svört synthetic (plast) eða í felulitum, tekur allt að 3,5”skot.


Aðrar útfærslur af byssunni geta tekið skot allt að 3,5”. Byssunni fylgir ólarfesting, 3 þrengingar og lykill fyrir þrengingar.


Winchester Sx3 fæst að sjálfsögðu í Ellingsen.



Jólagjafaleikur á Facebook síðu Ellingsen

Birt: 10/12 2010

Jólagjöfin fæst í Ellingsen

Nú í desember munum við draga út gjafabréf upp á kr. 25.000,- í hverri viku fram að jólum. Það eina sem þarf að gera er að „líka við“ og skrifa á vegginn á Facebook síðu Ellingsen hvað frá Ellingsen er á óskalistanum þínum fyrir jólin.


Nú þegar er komið inn fullt af jólagjafahugmyndum.


Það var Ása Þorsteinsdóttir sem vann kr. 25.000,- í gjafabréf í Ellingsen þessa fyrstu vikuna. Hún óskaði sér úlpu, gönguskó og fleira í jólagjöf.

Til hamingju Ása.


Jólakveðja,

Starfsfólk Ellingsen