Prufukeyrsla Can Am 800ltd Outlander
Birt: 08/11 2010
Laugardaginn 6 nóvember komu góðir gestir í Ellingsen til að prufukeyra nýja Can Am 800 ltd Outlander árgerð 2011.
Það voru aðilar í Björgunarsveitunum Blakk á Patreksfirði og Björgunarsveitinni Tálkna á Tálknafirði sem keyrðu hjólið upp um hlíðar Úlfarsfells og fengu að finna mun á Can Am 800ltd outlander árg. 2009 og Can Am 800ltd Outlander árg. 2011 hjólunum.
Megin munur þessara tækja er rafmagnsstýri á 2011 hjólinu og loftdemparar sem er ekki á 2009 hjólinu. Það var mál manna að Outlander 2011 henti mun betur í slóðaleit þar sem ökumaður er miklu afslappaðri á því fjórhjóli heldur en á eldri árgerð vegna þess að hjólið er ekki að „refsa“ mönnum þegar það er keyrt. Ökumanni ásamt farþega líður vel á fjórhjólinu þegar fara þarf hratt yfir og hefur Can Am Outlander 800 ltd. yfirburði í mýkt og snerpu. Burðargetan á nýja hjólinu er rúmlega 270 kg og þegar pallur er settur á hjólið eða vatnsheldu boxin, þá er mjög þægilegt að ferja búnað á því.
Flokkur: Ferðatæki, Fjórhjól, Ýmislegt | | Engar athugasemdir »

