Sumarmarkaður Ellingsen 22. júlí til 6. ágúst
Birt: 22/07 2010
Hinn árlegi Sumarmarkaður Ellingsen er hafinn!
Búðin er sprengsfull af vörum á tilboði frá 15% til 70% af verði og valdar vörur frá Columbia eru á 80% afslætti.
Eins og áður þá fara „góðu bitarnir“ fyrst og því gildir „fyrstir koma fyrstir fá“.
Ef þú ert að fara í útilegu og vantar Coleman gæðastól og skvísu með kæli þá er rétt að kíkja við á Fiskislóðina, nú eða vantar þig tjald? Fellihýsin hafa rokið út í sumar og allur viðlegubúnaður en við eigum enn fjöldann allan af vörum fyrir þig á Sumarmarkaðnum.
Ertu að fara í veiði? Strákarnir í veiðideildinni hafa dregið þá nokkra úr ám landsins í sumar og vilja ólmir segja þér frá því, góð veiðisaga er aldrei betri en þegar fjöldinn heyrir! Loop er á tilboði og allar aðrar stangveiðivörur og þeir í sumarskapi.
Fyrir gönguferðina þá eru starfsmenn Ellingsen tilbúnir að aðstoða þig að finna rétta fatnaðinn, hvort sem þú ætlar uppá Esju eða á Hornstrandir. Frá sokkum og upp í húfu.. (þarf hana á sumrin? ) að sjálfsögðu er Devold undirfatnaður á tilboði.
Degi er að farið að halla og nú þegar rómantískasti tími ársins er að hefjast með sinni fallegu birtu þá er ekki slæmt að vera með góð ljós af Sumarmarkaðnum.
Er fyrirhuguð ferð á Fjórhjóli um landið í ágúst en vantar hjólið? Komdu við og strákarnir í ferðatækjum taka vel á móti þér með kaffi og kræsnar sögur, já eða frábær tilboð.
Nú fer senn að líða að skotveiðitímabilinu og því er lag að skoða og yfirfara skotvopnin. Athuga hvað það er sem vantar, er hanskinn síðan í fyrra týndur? Eða varstu ekki nógu vel falinn í fyrra? Jói byssusmiður veit eitt og annað í því samhengi. Á Sumarmarkaði mælum við með liggibyrgi fyrir næstu vertíð.
Sumarmarkaðurinn stendur fram að verslunarmannahelgi og nú er rétti tíminn að ná í vörur sem vantar fyrir síðustu ferðir sumarsins þótt að við ferðumst um landið allt árið.
Njótum ferðalagsins og göngum um landið með virðingu og tryggjum öryggi alla leið.
Skrifa athugasemdir
