Devold undirfatnaður

Birt: 16/07 2010

Við erum mjög stolt að hafa til sölu í Ellingsen, Devold fatnað sem er einhver besti ullarundirfatnaður sem völ er á. Devold er norskur framleiðandi sem hóf framleiðslu á ullarfatnaði árið 1853. Ull í hæsta gæðaflokki er aðalsmerki þessa virta framleiðanda og hafa menn bæði til sjós og lands reitt sig á þau við erfiðar aðstæður.


Krafan um aukin þægindi í fatnaði hefur vaxið mikið síðan Devold hóf framleiðslu. Fyrirtækið hefur lagt mikla áherslu á að uppfylla kröfur nútímans hvað þetta varðar og það má segja að það sé lykillinn af velgengi fyrirtækisins öll þessi ár.


Mikil vöruþróun á sér stað og hjá Devold og nýjar vörur með nútímalegu útliti og eiginleikum í bland við aðrar hefðbundnari sjá dagsins ljós með reglulegu millibili. Við hjá Ellingsen höfum reynt að hafa sem mesta úrvalið af Devold fatnaði en okkar viðskiptavinir geta þó alltaf gengið að hinum hefðbundnu vörum Devold s.s. ullarbolum með mismunandi útfærslum og föðurlandi.


Devold skiptir fatnaðinum upp í þrjú mismunandi stig með m.t.t. einangrunar. Þau heita Multi Sport, Active og Expedition.


Multi Sport fatnaðurinn er léttur eins lags ullarfatnaður sem hentar vel í léttar gönguferðir og sem einangrun þegar ekki er mjög kalt í veðri. Hann er gerður fyrir + 10°C til -10°C. Efnið andar frá sér og heldur þér þurrum þó þú svitnir.


Active er tveggja laga ullarundirfatnaðurinn og gerður fyrir +5°C til -20°C. Fötin anda vel og flytja raka frá líkamanum þar sem hann svo gufar upp. Jafnvel þó þú svitnir ertu þurr og fötin halda þér hita. Þau eru mjög mjúk og þæginleg og henta vel fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir ullarfatnaði.


Expedition er hörkutólið í vöruflóru Devold. Fatnaður sem notaður hefur verið í pólferðir og staðist þær væntingar sem til þeirra hefur verið gerðar þar. Þau eru gerð fyrir +5°C til -50°C. Fötin hafa góða öndunareiginleika og halda þér þurrum þó þú svitnir við átökin.


Hvað einangrun á ég svo að taka? Það fer að sjálfsögðu efir því hvar nota á fötin. Ég á sjálfur Active aðalega vegna þess hversu vel þau nýtast bæði á sumrin og á veturna. Mér líður vel í þeim í gönguferðum allan ársins hring, svo framalega sem það er ekki of heitt í veðri og svo nota ég þau undir skíðagallann þegar ég kemst í brekkurnar. Ef þig vantar góð og hlý undirföt og ert í vafa hvað þú átt að velja kíktu þá á okkur og fáðu aðstoð hjá starfsmönnum Ellingsen við valið.


Skrifa athugasemdir