Sumarmarkaður Ellingsen 22. júlí til 6. ágúst
Birt: 22/07 2010
Hinn árlegi Sumarmarkaður Ellingsen er hafinn!
Búðin er sprengsfull af vörum á tilboði frá 15% til 70% af verði og valdar vörur frá Columbia eru á 80% afslætti.
Eins og áður þá fara „góðu bitarnir“ fyrst og því gildir „fyrstir koma fyrstir fá“.
Ef þú ert að fara í útilegu og vantar Coleman gæðastól og skvísu með kæli þá er rétt að kíkja við á Fiskislóðina, nú eða vantar þig tjald? Fellihýsin hafa rokið út í sumar og allur viðlegubúnaður en við eigum enn fjöldann allan af vörum fyrir þig á Sumarmarkaðnum.
Ertu að fara í veiði? Strákarnir í veiðideildinni hafa dregið þá nokkra úr ám landsins í sumar og vilja ólmir segja þér frá því, góð veiðisaga er aldrei betri en þegar fjöldinn heyrir! Loop er á tilboði og allar aðrar stangveiðivörur og þeir í sumarskapi.
Fyrir gönguferðina þá eru starfsmenn Ellingsen tilbúnir að aðstoða þig að finna rétta fatnaðinn, hvort sem þú ætlar uppá Esju eða á Hornstrandir. Frá sokkum og upp í húfu.. (þarf hana á sumrin? ) að sjálfsögðu er Devold undirfatnaður á tilboði.
Degi er að farið að halla og nú þegar rómantískasti tími ársins er að hefjast með sinni fallegu birtu þá er ekki slæmt að vera með góð ljós af Sumarmarkaðnum.
Er fyrirhuguð ferð á Fjórhjóli um landið í ágúst en vantar hjólið? Komdu við og strákarnir í ferðatækjum taka vel á móti þér með kaffi og kræsnar sögur, já eða frábær tilboð.
Nú fer senn að líða að skotveiðitímabilinu og því er lag að skoða og yfirfara skotvopnin. Athuga hvað það er sem vantar, er hanskinn síðan í fyrra týndur? Eða varstu ekki nógu vel falinn í fyrra? Jói byssusmiður veit eitt og annað í því samhengi. Á Sumarmarkaði mælum við með liggibyrgi fyrir næstu vertíð.
Sumarmarkaðurinn stendur fram að verslunarmannahelgi og nú er rétti tíminn að ná í vörur sem vantar fyrir síðustu ferðir sumarsins þótt að við ferðumst um landið allt árið.
Njótum ferðalagsins og göngum um landið með virðingu og tryggjum öryggi alla leið.
Flokkur: Fatnaður, Ferðatæki, Ferðavörur, Fjórhjól, Skotveiði, Skór, Stangveiði, Ýmislegt | | Engar athugasemdir »
Devold undirfatnaður
Birt: 16/07 2010
Við erum mjög stolt að hafa til sölu í Ellingsen, Devold fatnað sem er einhver besti ullarundirfatnaður sem völ er á. Devold er norskur framleiðandi sem hóf framleiðslu á ullarfatnaði árið 1853. Ull í hæsta gæðaflokki er aðalsmerki þessa virta framleiðanda og hafa menn bæði til sjós og lands reitt sig á þau við erfiðar aðstæður.
Krafan um aukin þægindi í fatnaði hefur vaxið mikið síðan Devold hóf framleiðslu. Fyrirtækið hefur lagt mikla áherslu á að uppfylla kröfur nútímans hvað þetta varðar og það má segja að það sé lykillinn af velgengi fyrirtækisins öll þessi ár.
Mikil vöruþróun á sér stað og hjá Devold og nýjar vörur með nútímalegu útliti og eiginleikum í bland við aðrar hefðbundnari sjá dagsins ljós með reglulegu millibili. Við hjá Ellingsen höfum reynt að hafa sem mesta úrvalið af Devold fatnaði en okkar viðskiptavinir geta þó alltaf gengið að hinum hefðbundnu vörum Devold s.s. ullarbolum með mismunandi útfærslum og föðurlandi.
Flokkur: Fatnaður | Efni: Devold, föðurland, ullarbolir, undirföt, Útivistarföt | Engar athugasemdir »
Stórlaxinn sýnir sig
Birt: 12/07 2010
Þeir hjá SVFR eru virkir í því að miðla upplýsingum á heimasíðu sinni en daglega berast fréttir af veiði í ám í þeirra umsjón. Það er gaman að sjá að það eru að fást eitthvað af stórlaxi en í fyrradag þann 10. júlí kom á land í Klingenberg í Laxá í Kjós 103 cm spikfeitur hængur áætlaður 22-24 pund.
Sá sem landaði þessum bolta var að fá sinn annan lax en Maríulaxinn hafði hann fengið daginn áður, ekki slæm byrjun hjá þessum nýliða í laxveiðinni. Hann var í á aðra klukkustund að landa laxinum en þar sem hann komst illa í háf var honum landað ofan við veiðistaðinn í viðurvist tveggja leiðsögumanna.
Einnig segir frá lánsömum veiðimönnum sem skelltu sér á lausar stangir í Stóru-Laxá III og settu í átta laxa og lönduðu fimm og þar af einum bolta, 93 cm hvorki meira né minna.
Myndband náðist af viðureigninni og má sjá það hér að neðan.
Flokkur: Stangveiði | Efni: Laxá í Kjós, Stóra-Laxá III | Engar athugasemdir »
Nýkomin sending af skotvopnum
Birt: 02/07 2010
Í þessari viku kom í hús ný sending af skotvopnum. Þetta eru haglabyssur og rifflar fyrir mismunandi tegundir veiða og í mörgum verðflokkum. Þessi skotvopn eru bæði fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í sportinu og svo þá sem eru lengra komnir og vita vel hvað þeir vilja. Nýja sendingin samanstendur af tegundunum Remington og Marlin og hvetjum við áhugasama til að skoða úrvalið. Á myndinni má sjá einn af riffilunum, Marlin 925R 22LR en eins og segir í vörulýsingu þá er þetta góður riffill fyrir byrjendaveiðar á smærri dýrum og til æfinga. Hann er ódýr en umfram allt nákvæmur og kemur með sjónauka.“ Verðið ætti ekki að skemma fyrir en hann kostar aðeins 62.99o kr.
Marlin 925R Riffill 22LR
Flokkur: Skotveiði | Efni: Marlin, Remington | Engar athugasemdir »
