Vinningshafar í Jónsmessumóti

Birt: 24/06 2010

Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen fór fram miðvikudagskvöldið 23. júní. Keppt var um farandbikar Ellingsen og var góð þátttaka á mótinu. Alls kepptu 18 keppendur í blíðskapar veðri en mótið hófst kl. 19.00 og lauk ekki fyrr en eftir kl. 22.00.


Þetta var spennandi keppni sem lauk með bráðabana um 3. sætið. Það voru þeir Svavar Stefánsson, Valgeir Ævarssson og Ásbjörn Sírnir Arnarsson sem kepptu í bráðabana og þegar upp var staðið hafði Ásbjörn vinningin um 3 sætið.


Hringirnir sem voru skotnir voru eftirfarandi, Skeet 16 dúfur, Rabbit 10, Byrgi 25 dúfur og Sporting 25 dúfur, samtals 76 dúfur.


Úrslitin voru sem hér segir:
Gunnar Þór Þórarnarsson hlaut fyrir 65 dúfur, farandbikar frá Ellingsen, gullverðlaunapening og Winchester skotvesti.
Stefán Gaukur Rafnsson hlaut fyrir 60 dúfur, silfurverðlaunapening og Winchester byssutösku.
Ásbjörn Sírnir Arnarson hlaut fyrir 58 dúfur, bronzverðlaunapening og Winchester derhúfu.




Skrifa athugasemdir