Ellingsen styður, Kastað til bata
Birt: 07/06 2010
Krabbameinsfélagið hefur hrint af stað verkefninu „Kastað til bata“ og er það Ellingsen mikill heiður að fá að taka þátt í því. Hér að neðan má lesa frétt Krabbameinsfélgsins um verkefnið og er hún svohljóðandi:
Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands býður konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í þriggja daga ferð í júlí norður í Laxárdal. Markmið þessa boðs Krabbameinsfélagsins er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi Laxár, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða urriða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og sjúkraþjálfari, sem einnig er vanur fluguveiðimaður verður til halds og trausts. Í kastæfingum verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. Á staðnum verða félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Gert er ráð fyrir þátttöku fjórtán kvenna. Gist er í tveggja manna herbergjum og á boðstólum verður ljúffengur og hollur matur í anda krása úr matreiðslubókinni Bragð í baráttunni.
Ferðin tekur þrjá daga, flogið verður til Akureyrar að morgni 12. júlí, staldrað við á Akureyri þar sem sóttur er veiðibúnaður sem fenginn er að láni frá Ellingsen og síðan ekið að Rauðhólum í Laxárdal þar sem hópurinn gistir.
Á bökkum Laxár gefst konum tækifæri til að gleyma sér í kyrrð og ró í stórbrotinni náttúrufegurð Laxárdals og sækja styrk til kvenna með svipaða reynslu, sem eru sáttar við breytingar sem sjúkdómurinn olli og eru tilbúnar að miðla af sinni reynslu. Síðast en ekki síst er tilgangurinn sá að njóta gleðinnar sem því fylgir að kasta flugu, renna fyrir silung, vaða tært vatn Laxár og endurnærast á sál og líkama. Á þriðja degi verður síðan ekið aftur til Akureyrar og flogið heim að kvöldi til.
Konur sem hafa hug á að taka þátt í Laxárferðinni eru beðnar að senda umsókn til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 25. júní. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is. Í Ráðgjafarþjónustunni eru veittar nánari upplýsingar í síma 540-1900. Þátttakendur á höfuðborgarsvæðinu hittast á undirbúningsfundi í Ráðgjafarþjónustunni fyrir ferðina.
Samstarfaðilar verkefnisins eru:
Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Ellingsen, Veiðihornið, Flugfélag Íslands, Icelandair, Veiðihúsið Rauðhólum, Vífilfell, Heilsa, Nettó, Lýsing, Landsnet, Alþýðusamband Íslands og Bjarni Höskuldsson og félagar leiðbeina um veiðisvæðið.
Skjólstæðingar Krabbameinsfélagsins sem vilja taka þátt í þessu verkefni geta heimsótt vefsíðu Krabbameinsfélagsins með því að smella hér og nálgast frekari upplýsingar um skráningu.
Skrifa athugasemdir
