Vinningshafar í Jónsmessumóti
Birt: 24/06 2010
Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen fór fram miðvikudagskvöldið 23. júní. Keppt var um farandbikar Ellingsen og var góð þátttaka á mótinu. Alls kepptu 18 keppendur í blíðskapar veðri en mótið hófst kl. 19.00 og lauk ekki fyrr en eftir kl. 22.00.
Þetta var spennandi keppni sem lauk með bráðabana um 3. sætið. Það voru þeir Svavar Stefánsson, Valgeir Ævarssson og Ásbjörn Sírnir Arnarsson sem kepptu í bráðabana og þegar upp var staðið hafði Ásbjörn vinningin um 3 sætið.
Hringirnir sem voru skotnir voru eftirfarandi, Skeet 16 dúfur, Rabbit 10, Byrgi 25 dúfur og Sporting 25 dúfur, samtals 76 dúfur.
Flokkur: Skotveiði | Efni: Jónsmessumót, Winchester | Engar athugasemdir »
Jónsmessumót Skotreynar og Ellingsen
Birt: 23/06 2010
Jónsmessumót verður haldið miðvikudaginn 23. júní í samstarfi við Ellingsen. Mótið verður haldið á félagssvæði Skotreynar.
Mæting klukkan 18:00 en mót hefst kl 18:30. Þátttökugjald 2.000 kr. Skotnar verða 76 dúfur.
10 rabbit
16 skeet
25 velli 3
25 random í byrgi
Samanlagður árangur ræður sætum.
Flokkur: Skotveiði | Efni: Jónsmessumót | Engar athugasemdir »
Vörukynning: Campingaz Fargo Ferðagasgrill
Birt: 16/06 2010
Ég ætla að draga fram nýkomna vöru í Ellingsen sem útilegukindum landsins þykir væntanlega mikið til koma en það er Campingaz Fargo ferðagasgrill. Flott hönnun og einfaldleiki er það sem mér finnst um þetta grill. Grillflöturinn er 1500cm² en til samanburðar eru tveggja og þriggja brennara grillin sem við sjáum á pöllum og svölum landsmanna frá 2000 cm² – 2500 cm². Það er því lítið mál að skella upp grillveislu á tjaldstæðum landsins með þessu grilli án þess að þurfa að grilla í mörgum umferðum. Hitinn nær auðveldlega 250 gráðum sem er ákjósanlegur sem mesti hiti en ekki er ætlast til að hitinn sé hærri þegar grillað er.
Þó að kolagrillskeimurinn sé alltaf yndislegur þá eru það vissulega þægindi að geta fírað uppí gasinu og byrjað að grilla „med det samme“, verið að eins lengi og maður vill og pakkað saman á stundinni. Sitt sýnist hverjum en það sem er jákvætt í þessu öllu saman er að við höfum val. Einnig má benda á flott ferðagasgrill frá Coleman sem er stærra en hitt en ber sama eiginleika og öll önnur ferðagrill, að vera handhægt.
Flokkur: Bakgarðurinn, Ferðavörur | Efni: Campingaz, Grill | 2 Athugasemdir »
Ellingsen styður, Kastað til bata
Birt: 07/06 2010
Krabbameinsfélagið hefur hrint af stað verkefninu „Kastað til bata“ og er það Ellingsen mikill heiður að fá að taka þátt í því. Hér að neðan má lesa frétt Krabbameinsfélgsins um verkefnið og er hún svohljóðandi:
Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands býður konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í þriggja daga ferð í júlí norður í Laxárdal. Markmið þessa boðs Krabbameinsfélagsins er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi Laxár, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða urriða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og sjúkraþjálfari, sem einnig er vanur fluguveiðimaður verður til halds og trausts. Í kastæfingum verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. Á staðnum verða félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Flokkur: Stangveiði | Efni: flugukast, Laxá | Engar athugasemdir »
Gullgripaveiðar á Rauðusöndum
Birt: 04/06 2010
Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni.
Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.
Flokkur: Skotveiði | Efni: Namibía, Veiðferðir | Engar athugasemdir »
