Sýning á nýjum ferðatækjum

Birt: 21/04 2010

Við höfum tekið á móti fjölda fólks undanfarna daga sem hafa sýnt nýju ferðatækjunum okkar mikinn áhuga. Til að svara eftirspurn eftir minni tækjum tókum við inn nýja týpu af Coleman fellihýsi sem kallast Sedona  og einnig kynnum við í fyrsta skipti á Íslandi minni útgáfuna af Aliner a-hýsinu sem kallast Classic. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að gengi íslensku krónunar hefur áhrif á val fólks þegar kemur að ferðatækjum í dag og því má búast við því að minni tæki verði eftirsóttari en áður. Það er þá ekki þar með sagt að einhverju sé til sparað við gerð þessara tækja því þau eru í hæsta gæðaflokki. Einungis hefur verið til sparað í stærð þeirra en ekki gæðum. Til viðbótar við þessar nýju týpur erum við með til sölu gömlu góðu týpurnar sem hafa verið í sölu hjá okkur í gegnum árin og reynst vel við íslenskar aðstæður.


Við höfum einnig fengið nýja sendingu af hinum ýmsu aukahlutum fyrir ferðatækið, sjá hér. Einnig erum við með helling af nýjum vörum fyrir ferðalagið, sjá hér og gildir þá einu hvaða vistarverur fólk notar í ferðalaginu. Það er spennandi að skoða úrvalið hjá okkur af nýjum vörum og máta sig í nýjum ferðatækjum. Það er lokað hjá okkur á morgun sumardaginn fyrsta en við minnum á að við erum með opið á laugardögum frá 10:00 til 16:00.


Gleðilegt sumar :-)


Skrifa athugasemdir