Íslenski fáninn. Stolt þjóðar og þjóðararfur.
Birt: 02/03 2010
Þjóðfáni okkar er mikið prýði og einkennir okkur íslendinga á erlendri grund sem og hér heima. Falleg fánastöng með íslenska fánann dregin að hún er hvers manns prýði. Og hver þekkir það ekki að líta við, þegar ferðast er erlendis og við sjáum þjóðfána okkar blasa við. Oftast brosir hjartað okkar eilítið við það. Á kappleikjum hér heima og erlendis er gott að horfa á fánalitina og fyllir mann elju að sama skapi.
En fánann okkar ber að fara með virðingu og stolti. Hér að neðan er farið í fánareglur okkar, meðferð fánans, fánadaga og fróðleik um liti fánans og hvaða reglur gilda með fánaveifur og vimpla.
Flokkur: Bakgarðurinn | Efni: fánalög, fánastangir, íslenski fáninn | Engar athugasemdir »
Þjónustuverkstæðið býður í kaffi og kleinur
Birt: 02/03 2010
Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna mánuði við að koma upp þjónustuverkstæði Ellingsen að Vatnagörðum 12. Þó verkstæðið hafi verið opnað í byrjun janúar eins og stefnt var að stóðu iðnaðarmenn í ströngu næstu vikurnar við að setja upp lager og annað sem tilheyrir starfsemi sem þessari. Nú ætlum við að gera okkur glaðan dag og opna þjónustuverkstæðið með pompi og prakt með því að bjóða uppá kaffi og kleinur fimmtudaginn 4. mars frá klukkan 15-20. Þar gefst ykkur tækifæri til að sjá nýju aðstöðuna okkar og fá ráðgjöf frá sérfræðingum okkar. Við verðum með 20% afslátt af beltum og sannkallað grínverð á uppítökubeltum eða 9.900 – 19.900 kr. Smellið hér til að sjá kort af staðsetningu þjónustuverkstæðisins.
Flokkur: Bátavörur, Ferðatæki, Fjórhjól, Kerrur, Vélsleðar | Efni: þjónustuverkstæði | Engar athugasemdir »
