Nýir sölumenn í Ellingsen

Birt: 19/03 2010

Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.


Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.




Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.


Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.


Skrifa athugasemdir