IWA skotveiðisýningin í Nurnberg í Þýskalandi
Birt: 23/03 2010
Hin árlega IWA skotveiðisýningin var haldin í Nurnberg í Þýskalandi í 37. sinn. Á henni voru í fyrra um 1.100 sýnendur og meira en 32 þúsund manns heimsóttu hana frá um 100 löndum. Þetta er ein helsta og þýðingamesta sýning sem haldin er í heiminum í dag fyrir skotveiði og útivist. Undirritaður hefur heimsótt þessa sýningu undanfarin 17 ár, fyrst á námsárum mínum og eftir það á eigin vegum. Frá árinu 2005 hef ég farið á hana sem starfsmaður Ellingsen.
Á sýningunni í ár voru allir okkar helstu birgjar en mikið var um fundarhöld þar sem rætt var um komandi innflutning. Fróðlegt var að skoða margar af nýjungum framleiðanda okkar en við munum að sjálfsögðu kynna fyrir ykkur fyrir þeim á næstunni.
Margt gott og spennandi kom útúr þessari sýningu en þar ber kannski helst að nefna að nú höfum við fengið umboð fyrir Hornady kúluframleiðandann. Við munum leitast við að eiga gott úrval af kúlum og hleðsluvörum frá þeim í framtíðinni.
Remington hefur nú tekið yfir Marlin Firearms Company og því munum við bjóða upp á riffla frá þeim. Þeir verða þó einungis í litlum hlaupvíddum eins og .17 HMR og .22 L.R. Við munum fá eitthvað af nýju byssunni MAXUS sem er hálfsjálfvirk frá Browning. Þetta er frábær byssa í alla staði og bíður upp á margar nýjungar.
Phoenix byssan verður bráðlega aftur fáanleg en einnig eigum við von á nýja X-Bolt rifflinum frá Browning í nokkrum hlaupvíddum.
Þetta árið býður Minox sjónaukaframleiðandin uppá riffilsjónauka. Þetta eru gæðasjónaukar á viðráðanlegu verði, glerin eru þýsk en þeir eru settir saman í USA. Von er á þessum sjónaukum í ár.
Smellið hér til að skoða myndir frá ferð Ellingsen strafsmanna á hátíðina.
Með kveðju Jói byssusmiður
Skrifa athugasemdir
