IWA skotveiðisýningin í Nurnberg í Þýskalandi
Birt: 23/03 2010
Hin árlega IWA skotveiðisýningin var haldin í Nurnberg í Þýskalandi í 37. sinn. Á henni voru í fyrra um 1.100 sýnendur og meira en 32 þúsund manns heimsóttu hana frá um 100 löndum. Þetta er ein helsta og þýðingamesta sýning sem haldin er í heiminum í dag fyrir skotveiði og útivist. Undirritaður hefur heimsótt þessa sýningu undanfarin 17 ár, fyrst á námsárum mínum og eftir það á eigin vegum. Frá árinu 2005 hef ég farið á hana sem starfsmaður Ellingsen.
Flokkur: Skotveiði | Efni: haglabyssur, rifflar, skotfæri | Engar athugasemdir »
Nýir sölumenn í Ellingsen
Birt: 19/03 2010
Nú hafa bæst í hóp sölumanna Ellingsen tveir reynslumiklir menn á sínum sviðum. Það eru þeir Karl Helgi Jónsson og Benedikt Ragnarsson. Karl mun starfa í ferðatækjadeild þá aðalega við sölu á vélsleðum og fjórhjólum en Benedikt í stangveiðideild.
Karl er mikill áhugamaður um vélsleðasportið og hefur stundað það mikið síðustu ár. Hann situr í stjórn LÍV (Landsamband íslenskra vélsleðamanna) og hefur gert það síðastliðin tvö ár. Hann er einnig meðlimur í Björgunarsveitinni Kyndill í Mosfellsbæ. Karl er áhugamaður um hunda og þjálfun þeirra og á Dobermann hund. Hann situr í stjórn Aftureldingar í kvennafótboltanum en þær leika í efstu deild.
Benedikt er okkur að góðu kunnur því hann starfaði áður hjá Ellingsen við innkaup eftir að verslun hans Útivist og veiði var keypt af Ellingsen árið 2006. Hann er sannkallaður hvalreki á fjörur okkar því Benni eins og hann er jafnan kallaður er mikill reynslubolti í stangveiði. Hann er fæddur á bökkum einnar fegurstu Laxveiðiáar á Íslandi, Miðfjarðará og hefur verið með veiðidellu frá unga aldri. Hann gerðist leiðsögumaður 17 ára gamall og hefur verið það meira og minna öll sumur síðan þá. Benni er sérlegur aðdáandi Loop stangveiðivara sem hafa í gegnum tíðina verði þekkt fyrir áræðanleika og endingu. Hann leggur einnig metnaði í fluguborðið og því mun verða vel við haldið lofar hann.
Við óskum þessum nýju starfsmönnum góðs gengis í starfi.
Flokkur: Fjórhjól, Stangveiði, Vélsleðar | Efni: E-TEC, lax, Loop, ski-doo, veiðiflugur | Engar athugasemdir »
Góð mæting á opið hús hjá þjónustuverkstæði
Birt: 16/03 2010
Fyrir nokkrum dögum buðum við gestum og gangandi að skoða nýja þjónustuverkstæði Ellingsen. Fjölmargir komu og þáðu kaffi, kleinur og fleira meðlæti og spjölluðu við starfsmenn sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði. Nokkrir vélsleðar og fjórhjól voru á gólfinu þennan dag og mikið var rýnt ofan í vélar þeirra og fylgihlutir skoðaðir. Gestum bauðst að fá ráðgjöf hjá starfsmönnum þjónustuverkstæðisins og fjölmargir nýttu sér það. Eins og sjá má á myndunum á næstu síðu voru gestir á öllum aldri og litu út fyrir að skemmta sér konunglega.
Ný sending af skóm í hillur um helgina
Birt: 11/03 2010
Við vorum að fá sendingu af nýjum útivistarskóm frá Columbia og starfsmenn vinna nú í því og um helgina að koma þeim fyrir á góðum stað í skóhillunum. Ég set hér inn myndir af skónum fyrir áhugasama. Á mánudaginn mun ég setja skóna á ellingsen.is með öllum tilheyrandi upplýsingum. Smellið á meira til að sjá myndir af nýju skónum.
Flokkur: Skór | Efni: Columbia | Engar athugasemdir »
Hleðslunámskeið Ellingsen og Skotfélags Reykjavíkur
Birt: 05/03 2010
Fyrsta hleðslunámskeið Ellingsen í samvinnu við Skotfélag Reykjavíkur var haldið helgina 27/2. Átta nemendur tóku þátt og kennari var Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður. Námskeiðið var haldið í félagsheimili S.R. í Álfsnesi. Fyrirhuguð eru fleiri námskeið og við bendum áhugasömum á að skrá sig hjá sr@sr.is eða johannv@ellingsen.is. Næsta námskeið verður haldið þegar safnast hefur saman nægur fjöldi þátttakenda en við miðum við 8-10 manns.
Námskeiðið gefur E-réttindi til hleðslu skothylkja og eru þau félagsmönnum S.R. að kostnaðarlausu. Þau eru einnig frí fyrir þá viðskiptavini Ellingsen sem hafa keypt hleðslusett eða hafa fyrirhugað að kaupa hleðslusett hjá Ellingsen.
Flokkur: Skotveiði | Efni: hleðslunámskeið, skot, skotfæri | Engar athugasemdir »
