Viðtal við Jonna stökkvara
Birt: 10/02 2010
Síðan Jonni framkvæmdi eitt magnaðasta áhættustökk sem undiritaður hefur augum litið hefur mér leikið forvitni á að vita meira um manninn. Ég settist því niður með Jonna og fékk að skyggnast aðeins inn í heim ofurhugans.
Segðu okkur aðeins frá sjálfum þér Jonni?
Ég heiti Jónas Stefánsson og er á 22. aldursári. Ég bjó mín fyrstu ár í Reykjavík en fluttist svo norður. Undanfarin fmm ár hef ég svo búið í Mývatnssveit. Þar sem ég hef aldrei verið sérstaklega mikið borgarbarn í mér kann ég vel við það að búa úti á landi. Ég hef verið í skóla undanfarin ár og tók stúdentspróf við Framhaldsskólann á Laugum í hittifyrra. Nú er ég hinsvegar búsettur í Reykjavík þar sem ég stunda nám í margmiðlun.
Hvenær byrjaðiru að stunda mótorsport?
Ég byrjaði í snjókrossi fyrir átta árum en það var einmitt fyrsti veturinn sem keppt var í unglingaflokki. Ég byrjaði nú ekki með neinum látum og það var ekki fyrr en ég keppti í sportflokknum sem mér tókst að byrja að klífa upp metorðastigann í greininni. Eftir að hafa gengið hálf brösuglega fyrsta árið landaði ég Íslandsmeistaratitlinum tvö ár þar á eftir nú síðast í fyrra og er því núverandi Íslandsmeistari.
Stundarðu annað mótorsport en snjókross?
Já, aðalega mótorkross og Enduro. Fljótlega eftir að ég byrjaði að keppa í snjókrossi keppti ég fyrst í mótorkrossi. Einnig keppti ég samhliða í Enduroflokki. Eins og í snjókrossinu hef ég mjakast hægt og sígandi uppá við og tókst að vinna Íslandsmeistaratitilinn í Enduroflokki með smærri vélarstærð í fyrra. Ég hef einnig keppt í ískrossi en það er nú bara meira til að hafa gaman af og ég legg enga sértaka áherslu á þá grein. Ég lít á snjókrossið sem mína aðalgrein og ætla eftir sem áður að leggja þyngstu áhersluna á hana.
Hefurðu keppt eitthvað erlendis?
Ég keppti tvö síðustu árin á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Mér gekk alveg ágætlega og var bæði árin einu sæti frá því að komast í úrslitariðil. Árið 2008 dvaldi ég svo í einn mánuð í Svíþjóð við æfingar og keppti á fjórum mótum. Árangurinn var viðunandi en þeir eru talsvert framarlega í sportinu þarna úti. Aðstæður eru líka þar eins og best verður á kosið og ólíkt því sem við eigum að venjast hér.
Hvernig æfir maður sig fyrir mót?
Ég fer í ræktina fimm sinnum í viku. Ég reyni að fara á sleða eins oft og ég kemst en í snjóleysinu eins og núna í vetur hefur það reynst erfitt. Ég hjóla einnig mikið til að bæta akstursþolið. Það er gríðalega mikilvægt að vera í góðu formi, hafa gott úthald og vera sterkur. Það sést fljótlega á árangri manna á mótum hverjir eru í góðu formi og hverjir ekki.
Hvernig kom það til að þú stökkst fyrir Ellingsen?
Halldór Jóhannsson sem fer fyrir þjónustuverkstæði Ellingsen hafði samband við mig þegar ákveðið var að halda uppá það að Ellingsen hefur nú umboð fyrir allri BRP línunni. Hann vildi fá mig til að taka þátt í einhverjum viðburði og eftir að hafa lagt hausinn í bleyti ákváðum við að byggja stökkpall og stökkva fram af honum á vélsleða. Þegar leið á helgina og í ljós kom að það yrði engin snjór þessa helgi ákváðum við að ég skildi stökkva í sjóinn.
Hvernig leið þér daginn fyrir stökkið?
Það var aðallega nokkrum dögum fyrir stökkið sem þetta velktist aðeins um í kollinum á mér. Daginn fyrir stökkið þegar búið var að smíða pallinn og ég búinn að skoða aðstæður var ég hinsvegar bara fullur tilhlökkunar.
Hvernig fannst þér svo stökkið takast?
Það tókst í raun bara ótrúlega vel. Ég hefði alveg verið til í að ná að keyra sleðann lengra á sjónum og helst upp í sjóvarnargarð en það tókst ekki. Ég náði hinsvegar að keyra nokkra metra á sjónum og var bara ánægður með það.
Á svo að endurtaka stökkið einhverntímann aftur?
Það er aldrei að vita. Það væri líka gaman að finna uppá einhverju nýju. En aldrei að vita nema ég eða einhver annar leiki það einhverntímann eftir.
Við þökkum Jonna kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs gengis á Íslandsmeistaramótinu í vetur. Við minnum á heimasíðu hans www.jonni.is.
Hægt er að skoða myndir af stökkinu og viðburðinum hér.
Við settum einnig myndband á YouTube sem má finna hér.
Skrifa athugasemdir
