10 góðar ástæður fyrir vali á Evinrude E-TEC
Birt: 02/02 2010
Evinrude bættist fyrir ekki löngu síðan í vöruflóru framleiðandans BRP sem framleiðir meðal annars Ski-doo, Lynx og Can-am. Evinrude hafði árin á undan náð góðum árangri með hönnun og þróun á nýrri tækni sem kallast E-TEC sem gekk í stuttu máli útá endurhönnun á tvígegnisvélum. BRP sá mikla samnýtingarmöguleika í þessari tækni og þeim tækjum sem þeir framleiddu og keyptu því hið 100 ára gamla vörumerki Evinrude/Johnson.
Eftirfarandi listi sem kemur úr smiðju BRP sýnir svart á hvítu 10 góðar ástæður fyrir því að velja Evinrude E-TEC utanborðsmótora.
10# Sparneytnari
Evinrude E-TEC notar allt að 44% minna eldsneyti og 50% minni olíu en eldri gerðir af Evinrude utanborðsmótorum.
9# Minna viðhald
Ekki er nauðsynlegt að ástandsskoða Evinrude E-TEC utanborðsmótora á 3 ára eða 300 mílna fresti eins og flestir aðrir framleiðendur setja sem skilyrði.
8# Minni rekstrarkostnaður
Að skipta yfir í Evinrude E-TEC getur sparað umtalsverða fjármuni sem annars færu í ástandsskoðanir og eldnsneyti.
7# Engar áhyggjur
Allir hlutir og E-TEC kerfið í heild sinni er hannað með það að leiðarljósi að þú komist leiða þinna án vandræða.
6# Áræðanleiki
Ekkert hik. Í hvaða veðurskilyrðum sem er gera Evinrude E-TEC mótorar það sem af þeim er ætlast, að fara í gang án þess að hika.
5# Minni hávaði
Evinrude E-TEC eru allt að 50% hljóðlátari en eldri gerðir. Það er því auðveldara að tala saman um borð og sigla innan um bráð.
4# Minni mengun
Evinrude E-TEC mengar minna sem þýðir hreinna loft og minni reykur sem gerir bátsferðina ánægjulega.
3# Meira „tork“
Þú finnur vel fyrir aflinu þegar þú gefur inn og E-Tec mótorarnir svara inngjöfinni mjög fljótt.
2# Léttari
Allt að 150 kg léttari en sambærilegir utanborðsmótorar. Þarafleiðandi verður upptakið betra og vélin fyrir vikið sparneytnari.
1# Meiri tími á vatninu
Allir þessir þættir gera það að verkum að þú ert lengur á vatninu með E-TEC og bátsferðin verður ánægjulegri.
Skrifa athugasemdir
