Vinningshafar póstlistameðlima og facebook vina.
Birt: 22/02 2010
Dregin voru út tvö nöfn úr hópi póstlistameðlima og facebook vina Ellingsen og hlutu þau að launum bókina Spriklandi lax í boði veiðikokka. Þau sem duttu í lukkupottinn heita Sóley Helga Björgvinsdóttir og Rögnvaldur Örn Snorrason en þau eru bæði búsett á Akureyri. Við munum aftur bregða á leik innan skamms og tilkynna það bæði á facebook og póstlistanum. Því er um að gera að vera skráður á báðum stöðum svo það fari nú ekki fram hjá ykkur.
Flokkur: Ýmislegt | Efni: lax, stangveiði | Engar athugasemdir »
Þú gætir unnið fiskuppskriftabók
Birt: 17/02 2010
Við erum í gjafagírnum þessa vikuna og höfum ákveðið að gefa tvö eintök af Spriklandi lax í boði veiðikokka. Eins og Gummi í veiðideildinni benti á í bloggfærslu fyrr í vikunni þá vann bókin til verðlauna á Gourmand hátíðinni í París og því ekki nokkur spurning um að hér er um eigulega bók að ræða. Við munum draga út einn meðlim á póstlista Ellingsen og einn vin okkar á Facebook og gefa sitthvort eintakið af bókinni. Það eru því tvær leiðir til að vinna sér inn bók og það er annarsvegar að skrá sig á póstlistann og hinsvegar með því að skrá sig sem vin Ellingsen á Facebook. Við drögum úr nöfnunum í þann 19. feb og tilkynnum um vinningshafana í byrjun næstu viku.
Flokkur: Stangveiði | Efni: lax, stangveiði | Engar athugasemdir »
Uppskriftabók vinnur til verðlauna
Birt: 15/02 2010
Í Gourmandkeppni matreiðslubóka í París var matreiðslubókin Spriklandi lax í boði veiðikokka valin önnur besta fiskréttauppskriftabók í heimi. Þar voru lagðar fram átta þúsund bækur frá 136 þjóðlöndum og ekki minni menn en Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros voru meðal verðlaunahafa. Í bókinni segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Þessi frábæra bók fæst að sjálfsögðu hjá okkur í Ellingsen.
Flokkur: Stangveiði | Efni: lax, matreiðslubók, uppskriftir | 2 Athugasemdir »
Viðtal við Jonna stökkvara
Birt: 10/02 2010
Síðan Jonni framkvæmdi eitt magnaðasta áhættustökk sem undiritaður hefur augum litið hefur mér leikið forvitni á að vita meira um manninn. Ég settist því niður með Jonna og fékk að skyggnast aðeins inn í heim ofurhugans.
Segðu okkur aðeins frá sjálfum þér Jonni?
Ég heiti Jónas Stefánsson og er á 22. aldursári. Ég bjó mín fyrstu ár í Reykjavík en fluttist svo norður. Undanfarin fmm ár hef ég svo búið í Mývatnssveit. Þar sem ég hef aldrei verið sérstaklega mikið borgarbarn í mér kann ég vel við það að búa úti á landi. Ég hef verið í skóla undanfarin ár og tók stúdentspróf við Framhaldsskólann á Laugum í hittifyrra. Nú er ég hinsvegar búsettur í Reykjavík þar sem ég stunda nám í margmiðlun.
Flokkur: Vélsleðar | Efni: lynx, ski-doo | Engar athugasemdir »
10 góðar ástæður fyrir vali á Evinrude E-TEC
Birt: 02/02 2010
Evinrude bættist fyrir ekki löngu síðan í vöruflóru framleiðandans BRP sem framleiðir meðal annars Ski-doo, Lynx og Can-am. Evinrude hafði árin á undan náð góðum árangri með hönnun og þróun á nýrri tækni sem kallast E-TEC sem gekk í stuttu máli útá endurhönnun á tvígegnisvélum. BRP sá mikla samnýtingarmöguleika í þessari tækni og þeim tækjum sem þeir framleiddu og keyptu því hið 100 ára gamla vörumerki Evinrude/Johnson.
Eftirfarandi listi sem kemur úr smiðju BRP sýnir svart á hvítu 10 góðar ástæður fyrir því að velja Evinrude E-TEC utanborðsmótora.
Flokkur: Bátavörur | Efni: E-TEC, evinrude | Engar athugasemdir »
