Klæðnaður skiptir máli í ferðamennsku

Birt: 28/01 2010

Þegar farið er í gönguferðir, styttri sem lengri ferðir er mikilvægt að hugsa um klæðnaðinn. Klæðnaður er jú það sem skiptir í raun mestu máli þegar kemur að útivist allan ársins hring. Að klæða sig “rétt” getur oft skipt sköpum ef óhöpp fjarri byggð eiga sér stað ásamt því að vera með sjálfsagðan öryggisbúnað svo sem áttavita ( og kunna á hann ), síma, fyrstu hjálpar poka með helstu plástrum og umbúðum. Svo eru öll þau þægindi sem við viljum skapa með réttum klæðnaði nauðsynlegt til að ánægjan við ferðalögin verða sem mest. Hér að neðan ætla ég að útskýra hugtökin “innstalag, miðlag og ystalag” sem við notum oft í sambandi við fatnað. Því peysa er ekki bara peysa.



Innstalag

 

Með innsta laginu er lagður grunnur að því að njóta útivistar óháð veðri. Mikilvægt er að innsta lagið dragi raka frá líkamanum og ekki síður mikilvægt að það sé þægilegt. Undirfatnaður á að liggja þétt að líkama og halda honum hlýjum og þurrum. Ullin er best!

Langerma treyjur úr Merano ull og síðar buxur úr Merano ull eru líklegast það besta í undirfatnaði sem hægt er að fá. Ullarvörurnar frá Devold eru í hæsta gæðaflokki og í þrem mismunandi þykktum. Multi (light) , Active (mid) og Expedition (heavy), allt eftir notkun. Lambúshettur, buff,  sokkar og margar mismundandi gerðir af undirfatnaði frá Devold fást í Ellingsen.


Miðlag

 

Þegar spáð er í miðlaginu þá þarf það að falla eilítið lausara frá líkamanum. Miðlagið þarf að vera í snertingu við innsta lagið til að virknin verði sem best. Efnin eru hönnuð til að taka líkamshitann í smáum loftrýmum og þar af leiðandi eru þau oft fyrirferðameiri. Miðlög eru lika hönnuð til að draga raka frá líkamanum og flytja hann í ysta lag klæðnaðar. Það er vinsælt að nota fleece peysur / buxur, Merano ull og soft shell efni. Öll þessi efni er létt og afar góð sem miðlag. Mörg gerfiefni blandað með ull er líka góð sem miðlag. Oft er fleiri en ein flík notuð sem miðlag og kosturinn við lagskiptan klæðnað er að auðvelt er að auka við eða fækka fötum eins og þörf krefur. Miðlagsföt eru einnig notuð sem ysta lag þegar þannig stendur á. Ellingsen býður uppá fjölbreyttan miðlags klæðnað frá Columbia og Didriksons  og veiðifatnað frá t.d Härkila sem henta vel sem gönguklæðnaður líka. Gríðarlega vandaðar flíkur sem standast kröfur þess sem klæðist þeim. Frá Columbia eru svo til vatteraðar úlpur sem eru hugsaðar sem miðlag og fisléttar dúnúlpur með miklu einangrunargildi sem henta afar krefjandi aðstæðum t.d upp á jökla.


Ystalag

 

Ystalag getur verið Titanium, Omni-Tech®, Soft Shell, Gore-Tex®, (Sympatex, eVent) ofl. efni. Það sem er notað mest í útivist eru skeljar. Þær eru vind og vatnsheldar og vernda líkamann vel. Öll þessi efni eiga það sameiginlegt að hleypa vel frá sér raka, svokölluð öndun. Helsti munurinn á miðlagi og ystalagi er að hið fyrrnefnda er ekki eins vind og vatnshelt. Við íslenskar aðstæður hefur reynst best að vera í flíkum sem eru kallaðar 2ja – 3ja laga skeljar. (2 – 3 layers). Flestir jakkar eru með rennilása undir höndum til að auka útöndun við krefjandi aðstæður og buxur eru með auka rennilás á hlið til að auka útöndun. Megin reglan er sú að skeljar hafa ekki neina einangrun og því kemur miðlag að góðum notum. Engu að síður er hægt að hafa ystalagið fóðrað og þá helst í skíðabuxum og skíðajökkum.


Um umhirðu fatnaðar

 

Góð regla er að muna að ef ekki myndast perlur á ysta lagi í rigningu þá þarf að þvo flíkina. Í ódýrari flíkum þarf oft að endurnýja vatnsfráhrindandi filmuna og þá er gott að nota til þess ætlað sprey sem hentar öndunarefnum en áríðandi er að nota aldrei silikon sprey eða álíka efni þar sem þau loka loftrýmis / öndunarfilmunni. Þessi efni eru fáanleg í Ellingsen.


Njótið útivistarinnar og ferðumst með öryggi að leiðarljósi.


Ásbjörn Þór Ásbjörnsson



Skrifa athugasemdir